Lífið

Rándýr slagari bar sigur úr býtum í HR Musical - Myndband

Stefán Árni Pálsson skrifar
Skemmtilegt lag og myndband.
Skemmtilegt lag og myndband. vísir
Hið árlega HR Musical fór fram á árshátíð nemenda Háskólans í Reykjavík í Valshöllinni síðastliðinn laugardag. Þar öttu allar deildir skólans kappi um að gefa út besta lagið og bar Markaðsráð, félag viðskiptafræðinema, sigur úr býtum þriðja árið í röð.

Lagið var samið af Lárusi Erni Arnarsyni ásamt þeim Gunnari Birgissyni og Antoni Reyni Hafdísarsyni.

Textinn fjallar um drauma langþreyttra háskólanema um framtíðina eftir útskrift og eru þeir af ýmsum toga, allt frá því að reka ljósastofu að því að verða valdamikil bankakona.

Í öðru sæti lenti Pragma, félag verkfræðinema og í því þriðja var Lögrétta, félag lögfræðinema. Hér að neðan má sjá myndband við lag Markaðsráðs.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.