Perez Hilton þarf að fara í aðgerð eftir sjálfsskaða í beinu streymi á TikTok Freyja Þórisdóttir skrifar 9. ágúst 2026 15:12 Perez Hilton, sem heitir réttu nafni Mario Lavandeira, varð frægur í byrjun aldar fyrir slúðurblaðamennsku sína um stjörnurnar en hann tók upp nafnið Perez Hilton sem stælingu á Paris Hilton, sem var ein stærsta stjarnan í gulu pressunni á þeim tíma. Getty Fjölskylda stjörnubloggarans Perez Hilton hefur greint frá því að hann þurfi að gangast undir aðgerð eftir að hafa „misst mikið blóð“ í beinni útsendingu þann 4. ágúst þar sem hann skaðaði sjálfan sig í beinni á samfélagsmiðlinum TikTok. Frá þessu er greint í fjölda erlendra miðla en bandaríski fréttamiðillinn E! er einn þeirra. Þar kemur einnig fram að hann sé enn á sjúkrahúsi en að í yfirlýsingu frá fjölskyldu Hilton komi fram að ástand hans sé „alvarlegt en stöðugt“. Hjálp við sjálfsskaða er hægt sækja til heilsugæslu, bráðamóttöku, í hjálparsíma Rauða krossins 1717 eða hjá Barna og unglingageðdeild í síma 543-4300 Hann hlotið áverka sem krefjist skurðaðgerðar á næstu dögum. Hann eigi langt í land með að ná fullum bata en móðir hans og systir hafi varið tíma með honum á dögunum. „Við viljum staðfesta að Perez er enn á sjúkrahúsi samkvæmt Baker-lögunum í Flórída,“ kemur einnig fram í yfirlýsingunni en þau eiga við um geðheilbrigðislög sem veita neyðarþjónustu fyrir fólk sem þjáist af geðsjúkdómum, samkvæmt upplýsingum frá barna- og fjölskyldumálaráðuneyti Flórída. Á meðan Hilton (réttu nafni Mario Armando Lavandeira Jr.) er á batavegi biður fjölskylda hans almenning um að sýna virðingu í ljósi þessara erfiðu aðstæðna. „Þar sem fjölskylda okkar einbeitir sér áfram að meðferð og bata Perez þurfum við einnig svigrúm og friðhelgi til að sinna öllum þeim sem þetta ástand hefur áhrif á.“ Hilton er einstæður faðir þriggja barna: 13 ára sonar, 11 ára dóttur og 8 ára dóttur. Í öll skipti gengu staðgöngumæður með þau en í yfirlýsingunni biðla fjölskyldumeðlimir til fjölmiðla að hætta að elta börnin og mynda þau. „Við biðjum fjölmiðla aftur vinsamlegast um að yfirgefa heimilið og nágrenni þess, hætta að elta fjölskyldumeðlimi og hætta að mynda börn Perez,“ segir í yfirlýsingunni. „Við biðjum einnig myndastofur um að kaupa ekki, birta eða dreifa neinum myndum af börnunum sem kunna að hafa verið teknar.“ Bandaríkin Hollywood Geðheilbrigði Mest lesið Boltamömmur í miðjumoði Gagnrýni Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Lífið Nýr Bond lítur dagsins ljós von bráðar Bíó og sjónvarp Top Gun- og Alien-leikari látinn Lífið Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Ótrúleg saga fólks sem valdi mildi og mannúð í stað reiði Menning Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Bíó og sjónvarp Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Lífið Prótein á að vera í forgangi Lífið samstarf „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Lífið Fleiri fréttir Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Sjá meira
Frá þessu er greint í fjölda erlendra miðla en bandaríski fréttamiðillinn E! er einn þeirra. Þar kemur einnig fram að hann sé enn á sjúkrahúsi en að í yfirlýsingu frá fjölskyldu Hilton komi fram að ástand hans sé „alvarlegt en stöðugt“. Hjálp við sjálfsskaða er hægt sækja til heilsugæslu, bráðamóttöku, í hjálparsíma Rauða krossins 1717 eða hjá Barna og unglingageðdeild í síma 543-4300 Hann hlotið áverka sem krefjist skurðaðgerðar á næstu dögum. Hann eigi langt í land með að ná fullum bata en móðir hans og systir hafi varið tíma með honum á dögunum. „Við viljum staðfesta að Perez er enn á sjúkrahúsi samkvæmt Baker-lögunum í Flórída,“ kemur einnig fram í yfirlýsingunni en þau eiga við um geðheilbrigðislög sem veita neyðarþjónustu fyrir fólk sem þjáist af geðsjúkdómum, samkvæmt upplýsingum frá barna- og fjölskyldumálaráðuneyti Flórída. Á meðan Hilton (réttu nafni Mario Armando Lavandeira Jr.) er á batavegi biður fjölskylda hans almenning um að sýna virðingu í ljósi þessara erfiðu aðstæðna. „Þar sem fjölskylda okkar einbeitir sér áfram að meðferð og bata Perez þurfum við einnig svigrúm og friðhelgi til að sinna öllum þeim sem þetta ástand hefur áhrif á.“ Hilton er einstæður faðir þriggja barna: 13 ára sonar, 11 ára dóttur og 8 ára dóttur. Í öll skipti gengu staðgöngumæður með þau en í yfirlýsingunni biðla fjölskyldumeðlimir til fjölmiðla að hætta að elta börnin og mynda þau. „Við biðjum fjölmiðla aftur vinsamlegast um að yfirgefa heimilið og nágrenni þess, hætta að elta fjölskyldumeðlimi og hætta að mynda börn Perez,“ segir í yfirlýsingunni. „Við biðjum einnig myndastofur um að kaupa ekki, birta eða dreifa neinum myndum af börnunum sem kunna að hafa verið teknar.“
Hjálp við sjálfsskaða er hægt sækja til heilsugæslu, bráðamóttöku, í hjálparsíma Rauða krossins 1717 eða hjá Barna og unglingageðdeild í síma 543-4300
Bandaríkin Hollywood Geðheilbrigði Mest lesið Boltamömmur í miðjumoði Gagnrýni Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Lífið Nýr Bond lítur dagsins ljós von bráðar Bíó og sjónvarp Top Gun- og Alien-leikari látinn Lífið Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Ótrúleg saga fólks sem valdi mildi og mannúð í stað reiði Menning Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Bíó og sjónvarp Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Lífið Prótein á að vera í forgangi Lífið samstarf „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Lífið Fleiri fréttir Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Sjá meira