Bjarni: Brást við með sanngjörnum og eðlilegum hætti sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 17. mars 2016 12:14 Fjármálaráðherra vísar gagnrýni þingmanns Samfylkingarinnar á bug. Vísir „
Að þessu leytinu til tel ég að ég hafi brugðist við með sanngjörnum og eðlilegum hætti á allan hátt við erindi háttvirts þingmanns,“ sagði Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra við fyrirspurn Kristjáns L. Möller, þingmanns Samfylkingarinnar, á Alþingi í dag. Kristján og aðrir þingmenn Samfylkingarinnar hafa gagnrýnt Bjarna harðlega fyrir svar hans við fyrirspurn um sölu á eignarhlut Landsbankans í Borgun og Valitor. Tólf spurningar voru lagðar fram en þingmennirnir telja svörin ófullnægjandi. „Mín spurning til hæstvirts fjármálaráðherra er einfaldlega þessi: hyggst ráðherrann ekki láta ráðuneytið vinna upp viðbótar svar sem hann mun þá leggja hér fram á Alþingi og svara þeim spurningum sem til hans hafa verið beint,“ sagði Kristján sem meðal annars vildi svar við hvernig eignarhald skiptist á milli kaupenda. Bjarni sagðist ætla að taka það til skoðunar hvort þeirri spurningu verði svarað. „Ég heyri að háttvirtur þingmaður er spenntur fyrir því að finna út úr þessu og ég skal taka það til íhugunar hvort hægt sé að bregðast við því. En ég var eingöngu í upphafi málsins að benda á það að þessar upplýsingar eru ekki að finna í fjármálaráðuneytinu. Það eru tvær stjórnir á milli mín og upplýsinganna,“ sagði Bjarni. Þá sagðist hann hafa brugðist við spurningum Kristjáns með sem bestum hætti. „Staða málsins er einfaldlega sú að bankaráðið hefur nú athugasemdir bankasýslunnar til umfjöllunar og hyggst bregðast við þeim og er beðið um að gera það núna innan skamms tíma. Með þessum hætti er ég að leggja mitt af mörkum til þess að fá fram í dagsljósið allt sem varðar söluna í Borgun,“ sagði Bjarni.
Tengdar fréttir Bankasýslan sagði uppsögn Steinþórs ekki til skoðunar Bankasýsla ríkisins og bankaráð Landsbankans ekki sammála um hvort stofnunin hafi viljað segja upp bankastjóranum. 17. mars 2016 07:00 Landsbankinn ekki seldur á næstu mánuðum "Ég er mjög sáttur við að Bankasýslan bregðist við erindi mínu með þessum hætti. Þeir hafa tekið undir það að þetta mál hefur valdið bankanum vissu tjóni,‟ segir Bjarni Benediktsson, 15. mars 2016 08:00 Forstjóri Borgunar undrast boðaða málsókn Landsbankans Haukur hafnar því að stjórnendur Borgunar hafi leynt Landsbankann einhverjum upplýsingum í viðræðunum. 17. mars 2016 07:00 Segja Bankasýsluna hafa gengið of langt Fimm úr bankaráði Landsbankans ætla að hætta en Steinþór mun halda áfram að stýra bankanum. 16. mars 2016 20:53 Treystir að Landsbankinn grípi ráðstafana til að auka traust á bankanum Stjórnarformaður Bankasýslu ríkisins segir að aðferðin við sölu á hlut Landsbankans í Borgun og valitor hafi skaðað bankann. 15. mars 2016 12:56 Landsbankinn hafið undirbúning málsóknar vegna Borgunarmálsins Landsbankinn hyggst endurheimta það fé sem bankinn telur sig hafa farið á mis við í Borgunarmálinu. 16. mars 2016 15:12 Mest lesið Skipuleggur eigin jarðarför Innlent Hótuðu að loka Vogi Innlent „Ég stend eins lengi og ég þarf að standa í þessu“ Innlent Tuttugu lögðu ólöglega Innlent Íslandsferð með meintri hjákonu dró dilk á eftir sér Innlent Börnin segja hóp manna hafa elt þau og boðið nammi Innlent Eldur í bíl í Heiðmörk Innlent Opið bréf til Ingu: „Þetta er „lausn“ á einhverju sem var aldrei vandamál“ Innlent Arnarfell dregið til Færeyja Innlent Framtíð kanslarans í húfi Erlent Fleiri fréttir Opið bréf til Ingu: „Þetta er „lausn“ á einhverju sem var aldrei vandamál“ Náum verðbólgunni aldrei niður ef ríkið hægir ekki á sér Afi ákærður fyrir brot gegn barnabarni sínu Börnin segja hóp manna hafa elt þau og boðið nammi Danir og Grænlendingar til New York og hettuklæddir menn í Árbæ Arnarfell dregið til Færeyja Fimm nýir í stjórn Ungs jafnaðarfólks „Ég stend eins lengi og ég þarf að standa í þessu“ Hótuðu að loka Vogi Menntakerfið, útlendingamál og hallalaus fjárlög í Sprengisandi Tuttugu lögðu ólöglega Brutust inn hjá fyrirtæki Skipuleggur eigin jarðarför Eldur í bíl í Heiðmörk Mátti ekki binda nautin í tvo mánuði fyrir slátrun Fluttur á lögreglustöð til að sanna hver hann væri Engin hamsatólg í boði með skötunni nema einhver taki við framleiðslunni Íslandsferð með meintri hjákonu dró dilk á eftir sér Átök innan SÁÁ eins og „klassísk valdabarátta“ Ný umgjörð um daggæslu til skoðunar í ráðuneytinu Verkefnið sem hófst á Twitter stækkað umtalsvert Allir dómarar vanhæfir í máli ljósmóður á eftirlaunum Leyfi Trump að líða eins og sigurvegara þó hann hafi ekkert unnið Hafa miklar áhyggjur af verkfalli flugvirkja Danir sigurvegarar og ofurfólk í Heiðmörk Má heita Himbrimi og Aðalsól en ekki Kamban eða Heiðarr Eftirlýstur og með vopn á sér „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Sjö um borð þegar bíll valt á Barðastrandarvegi Sjá meira
Bankasýslan sagði uppsögn Steinþórs ekki til skoðunar Bankasýsla ríkisins og bankaráð Landsbankans ekki sammála um hvort stofnunin hafi viljað segja upp bankastjóranum. 17. mars 2016 07:00
Landsbankinn ekki seldur á næstu mánuðum "Ég er mjög sáttur við að Bankasýslan bregðist við erindi mínu með þessum hætti. Þeir hafa tekið undir það að þetta mál hefur valdið bankanum vissu tjóni,‟ segir Bjarni Benediktsson, 15. mars 2016 08:00
Forstjóri Borgunar undrast boðaða málsókn Landsbankans Haukur hafnar því að stjórnendur Borgunar hafi leynt Landsbankann einhverjum upplýsingum í viðræðunum. 17. mars 2016 07:00
Segja Bankasýsluna hafa gengið of langt Fimm úr bankaráði Landsbankans ætla að hætta en Steinþór mun halda áfram að stýra bankanum. 16. mars 2016 20:53
Treystir að Landsbankinn grípi ráðstafana til að auka traust á bankanum Stjórnarformaður Bankasýslu ríkisins segir að aðferðin við sölu á hlut Landsbankans í Borgun og valitor hafi skaðað bankann. 15. mars 2016 12:56
Landsbankinn hafið undirbúning málsóknar vegna Borgunarmálsins Landsbankinn hyggst endurheimta það fé sem bankinn telur sig hafa farið á mis við í Borgunarmálinu. 16. mars 2016 15:12