Alvarlegar athugasemdir gerðar við 65 prósent leikskólalóða Þórdís Valsdóttir skrifar 18. febrúar 2016 07:00 Dæmi um ágalla sem teljast alvarlegir eru ef fallundirlagi á leiksvæðum er ábótavant eða ef sandur er á stéttum lóðarinnar. Fréttablaðið/Stefán
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur gerði alvarlegar athugasemdir við 65 prósent leikskólalóða í árlegu eftirliti sínu. Af tilefni slíkra athugasemda eru tilmælum beint til leikskólayfirvalda að lagfæringar skuli fara fram strax. Tæplega 100 lóðir voru skoðaðar, bæði lóðir leikskóla sem reknir eru af borginni og einnig einkarekinna leikskóla. Þetta kom fram í kynningu Heilbrigðiseftirlitsins á reglubundnu eftirliti í leikskólum, grunnskólum og frístundaheimilum. Skoðuð eru leikvallatæki, fallundirlög, girðingar og fleira á lóðunum. Rósa Magnúsdóttir, deildarstjóri hjá Heilbrigðiseftirlitinu, segir að orðanotkunin í athugasemdunum sé vandmeðfarin og þó notast sé við orðalagið „alvarleg athugasemd“ þá þýði það ekki að yfirvofandi slysahætta sé til staðar. „Þetta eru atriði sem við gerum athugasemd við og viljum að séu athuguð án tafar. Ef við komum að einhverju sem við teljum vera bráðhættulegt eða svo mikið alvarlegt að það geti ekki beðið þá myndum við gera eitthvað í málinu strax,“ segir Rósa. Niðurstöður eftirlitsins eru sendar beint á skólastjóra þess leikskóla sem fær slíkar athugasemdir og afrit eru send á skóla- og frístundasvið og skrifstofu framkvæmda og viðhalds mannvirkja Reykjavíkurborgar. Heilbrigðiseftirlitið ætlast til að þeir aðilar er málið varða bregðist við athugasemdunum sem allra fyrst að sögn Rósu. Dæmi um ágalla sem teljast alvarlegir eru ef fallundirlagi á leiksvæðum er ábótavant og ef sandur og möl er á stéttum lóðarinnar. Þá sé alvarlegum athugasemdum beint til viðkomandi leikskóla sem beri að bæta strax úr.
Mest lesið Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Erlent Þeirri gulu misjafnt skipt á fyrsta degi sumars Veður Fleiri fréttir Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Sjá meira