Undirbúa lögleiðingu landtökubyggða í Palestínu Samúel Karl Ólason skrifar 6. desember 2016 07:39 Um fjögur þúsund heimili sem hafa verið byggð á umdeildu landi yrðu löglegar ef frumvarpið yrði samþykkt. Vísir/AFP
Ísraelska þingið undirbýr nú að fjalla um lagafrumvarp sem myndi lögleiða landtökubyggðir á Vesturbakkanum. Menntamálaráðherra landsins, Naftali Bennet, sem frumflutti frumvarpið, segir það fyrsta liðinn í innlimun mest alls þess svæðis sem Ísraelar og Palestínumenn deila um. Samkvæmt frumvarpinu yrðu um fjögur þúsund heimili, sem alþjóðalög segja ólöglega byggð, lögleg. Frumvarpið á eftir að fara í gegnum þrjár umræður á þinginu. Önnur útgáfa af frumvarpinu hefur áður komist á sama stig, en deilur um landtökubyggðina Amona urðu til þess að frumvarpið komst ekki lengra. Sá kafli hefur nú verið fjarlægður úr frumvarpinu en til stendur að tæma Amona þann 25. desember.Samkvæmt Times of Israel hafa Sameinuðu þjóðirnar, Bandaríkin og Evrópusambandið komið fram athugasemdum varðandi frumvarpið. Meðal annars segja Sameinuðu þjóðirnar að það brjóti gegn alþjóðalögum. Þrátt fyrir að frumvarpið hafi komist í gegnum fyrsta skref ísraelska þingsins, Knesset, og ef það færi í gegnum allar umræðurnar þrjár, telja greinendur að Hæstiréttur Ísrael myndi koma í veg fyrir að það yrði að lögum. Dómsmálaráðherra landsins hefur varað við því að frumvarpið brjóti gegn alþjóðalögum.
Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Erlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Innlent Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Erlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Erlent Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Erlent Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Innlent Fleiri fréttir Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Sjá meira