„Mér líður eins og ég hafi verið að útskrifast úr menntaskóla,“ segir Alvia og hlær aðspurð hvaða þýðingu Kraumsverðlaunin hafi fyrir hana.
„Nema í staðinn fyrir að fara í menntaskóla þá fór ég mína leið og fylgdi draumnum sem var að gefa út plötu. Þetta er það skemmtilegasta sem ég hef gert og ég lærði mikið af því. Þannig að já, að fá svona viðurkenningu, það er mjög nett.“

„Já, og ég skrifaði textana á sex mánuðum. Platan var svo tekin upp á þremur dögum uppi í Shades Studio með Hermanni Bridde og hann mixaði síðan plötuna,“ segir Alvia sem er ein af fáum stelpum í rappsenunni á Íslandi.
„Það er æðislegt, ég elska að vera stelpa!“
Það sem veitti Alviu innblástur við gerð plötunnar voru bleikir tyggjópakkar, sleikjóar, draumar, tilfinningar og eilífðin að hennar sögn.
Hún lýsir plötunni sem „slow trap“-plötu með djúpum bassa sem virkar vel í bílinn og partíið.
Alvia er spennt fyrir framhaldinu.
„Það er að koma nýtt ár og 2017 verður yndislegt! Það eru fullt af tónleikum framundan og mig langar rosalega að fara hringinn um landið og spila úti á landi. Svo er nóg af nýrri músík og myndböndum á leiðinni og meira skemmtilegt frá mér og GumGumClan,“ segir Alvia og mælir með að áhugasamir fylgist með framhaldinu á vefnum gumgumclan.com.