Fimmmenningarnir sem setið hafa í gæsluvarðhaldi síðastliðna viku grunaðir um stórfelld skattalaga- og bókhaldsbrot losnuðu úr haldi síðdegis í dag. Að sögn Ólafs Þórs Haukssonar héraðssaksóknara var ákveðið að fara ekki fram á frekara gæsluvarðhald yfir hinum grunuðu þar sem rannsóknarhagsmunir þóttu ekki standa til þess.
„Það er búið að vinna í þessu af miklum krafti þessa viku á meðan þau voru í gæslu og það hefur orðið ágætis framvinda í málinu,“ segir Ólafur Þór, aðspurður hvernig rannsókn málsins miði. „En það liggur samt sem áður engu að síður fyrir að það er þónokkuð mikið verk sem þarf að vinna í framhaldinu.“
Sjá einnig: Fleiri reyna skipulagt að svíkja undan skatti
Fimmmenningarnir eru meðal þeirra níu sem handteknir voru í umfangsmiklum aðgerðum héraðssaksóknara og lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og Vesturlandi síðastliðinn þriðjudag. Handtökurnar snúa að rannsókn á stórfelldum brotum hjá nokkrum verktakafyrirtækjum í byggingariðnaðinum en grunur leikur á að fleiri hundruð milljónum króna hafi verið skotið undan.
Þá rannsakar lögreglan nú hvort verktakarnir hafi gerst sekir um mansal, auk þess sem komið var upp um kannabisræktun við handtökurnar. Lögregla hefur ekki gefið upp fjölda þeirra fyrirtækja sem eru til rannsóknar en samkvæmt heimildum fréttastofu eru Brotafl og Kraftbindingar stærstu tvö fyrirtækin sem um ræðir.
Ólafur Þór segir að engar fleiri handtökur hafi farið fram vegna málsins.
Grunur um skattsvik í byggingariðnaðinum: Fimmmenningarnir lausir úr varðhaldi

Tengdar fréttir

Rannsaka hvort að verktakar sem handteknir voru hafi gerst sekir um mansal
Fimm starfsmenn verktakafyrirtækja sitja í gæsluvarðhaldi grunaðir um stórfelld skattalaga- og bókhaldsbrotum.

Níu handteknir vegna rannsóknar á efnahagsbrotum í byggingariðnaði
Grunur um peningaþvætti, stórfelld skattalagabrot og brot á bókhaldslögum. Fimm eru í gæsluvarðhaldi.

„Við erum ekki farin að sjá botninn“
Vísbendingar eru um aukna skipulagða brotastarfsemi á sviði skattalaga. Umfangsmiklar handtökur lögregu á ellefu stöðum á þriðjudag eru aðeins eitt mál af um tuttugu sem ríkisskattstjóri hefur til rannsóknar í byggingariðnaðinum. Framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins segir stöðuna alvarlega.