Hvað gerir Thom Yorke til þess að hita upp fyrir Íslandsförina? Jú, hann mætir í partí til nágranna síns og tekur lagið. Svo virðist sem Yorke hafi eytt gærkvöldinu í bakgarði í Oxford með gítar í hönd og míkrófón við munn. Þar renndi hann víst í gegnum nokkra af fjöldamörgum slögurum Radiohead en myndbandi var deilt á YouTube í dag sem sýnir hann fikra sig í gegnum lagið Reckoning.
Myndbandið má sjá hér að ofan.
Hver veit nema að Yorke endi í garðpartý í Reykjavík á föstudaginn? Sveitin kemur fram á Secret Solstice hátíðinni á þjóðhátíðardag okkar Íslendinga og bíða aðdáendur þess með mikilli eftirvæntingu enda er þetta í fyrsta sinn sem sveitin heldur tónleika hér. Yorke er þekktur fyrir að koma fram með engum fyrirvara þar sem hann er staddur hverju sinni.
Thom Yorke hitar upp fyrir Secret Solstice í garðveislu nágranna
Tengdar fréttir

Secret Solstice appið komið út: Sjáðu hvenær þitt atriði er að spila
Hefð er fyrir því að tónlistarhátíðir sendi frá sér snjallsímaforrit til þess að upplýsa hátíðargesti um ýmis mikilvæg atriði.

Sister Sledge leyniatriði Secret Solstice í ár
Það eina sem vantaði á dagskrá hátíðarinnar var diskó.

Uppsetning vegna Secret Solstice í fullum gangi
„Uppsetning er á áætlun og höfum við verið afar heppin með veður sem að hjálpar auðvitað til.“