Dagurinn lengst um 40 mínútur Kristján Már Unnarsson skrifar 7. janúar 2015 13:59 Sólsetur í Reykjavík í dag er kl. 15.57, en var klukkan 15.29 þegar dagur var stystur, þann 21. desember. Vísir/Pjetur.
Landsmenn finna þessa dagana fyrir lengingu birtutímans með hækkandi sól. Þannig telst lengd dagsins í dag í Reykjavík vera 4 klukkustundir og 45 mínútur, en var 4 klukkustundir og sjö mínútur þann 21. desember. Lengingin frá vetrarsólstöðum er 38 mínútur en í dag var sólris klukkan 11.12 í borginni en sólsetur er klukkan 15.57, samkvæmt tímtalsvefnum timeanddate.com. Þann 21. desember, á stysta degi ársins, var sólris klukkan 11.22 en sólsetur klukkan 15.29. Á morgun verður lenging birtutímans orðin 42 mínútur. Eftir örlítil hænufet fyrstu dagana eftir vetrarsólstöður víkur skammdegið hratt upp úr þessu. Lenging dagsins í Reykjavík nemur fjórum mínútum á dag næstu daga, 13. janúar verður lengingin komin í 5 mínútur á dag og í 6 mínútur á dag eftir 24. janúar en þá verður lengd dagsins komin yfir sex klukkustundir. Þann 1. febrúar fer lengd dagsins svo yfir 7 klukkustundir. Talsverður munur er á birtutíma í skammdeginu eftir því hvar menn eru á landinu. Þannig er lengstur birtutími í dag, 7. janúar, í syðstu byggð Íslands, Vestmannaeyjum, 5 klukkustundir og 4 mínútur. Á Akureyri telst dagurinn vera 3 klukkustundir og 54 mínútur. Dagurinn í Eyjum er því 19 mínútum lengri en í Reykjavík og 70 mínútum lengri en á Akureyri.
Mest lesið „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Fleiri fréttir Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Sjá meira