Íslenskur sendifulltrúi á Grikklandi segir ástandið átakanlegt sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 10. nóvember 2015 12:31 Páll Biering. mynd/rauði krossinn
Páll Biering, dósent í geðhjúkrun við Háskóla Íslands og sendifulltrúi á Grikklandi segir ástandið þar í landi átakanlegt. Hann er úti á vegum Rauða krossins á Íslandi, og verður þar næstu sex vikurnar. Páll starfar í flóttamannabúðum norska Rauða krossins í Idomeni, smábæ við landamæri Makedóníu. Hans helstu verkefni eru að veita flóttafólki sem fer um búðirnar sálfélagslegan stuðning. „Það sem við gerum er að við reynum að sinna fólki sem þarf upplýsingar. Fólk sem er illa áttað, hvar það er statt, hvert það er að fara og hvað mun bíða þess,“ segir hann í samtali við Vísi. Hann segir mikið álag hafa verið á starfsfólki og sjálfboðaliðum Rauða krossins við landamæri Makedóníu á undanförnum vikum, þar sem þúsundir hafa fengið aðhlynningu og neyðargögn. „Þetta eru ágætlega skipulagðar búðir og sérstaklega læknisþjónustan er góð. Það er rosalegur fólksfjöldi sem fer í gegn hjá okkur, misjafnlega á sig komið. Ég held að síðan í september, síðan búðirnar opnuðu, hafi farið 270 þúsund manns hér í gegn. Þetta er kannski erfiðast fyrir börn og gamalt fólk," segir hann og bætir við að ástandið sé erfitt. „Það er líklega átakanlegast að sjá svona fjölda. Þarna er fólk á öllum stigum og kimum samfélagsins. Fólk sem á nóg af peningum og vel útbúið, fólk sem á minna og er illa útbúið og vantar flíkur, skó og annað þvíumlíkt. Næturnar eru erfiðastar fyrir fólkið því það er afar kalt. En flestir eru nokkuð ferskir og bera sig vel. Það er mjög gaman og gefandi að tala við þau og kynnast þessu fólki," segir Páll. Páli er einnig ætlað að þjálfa sjálfboðaliða gríska Rauða krossins í að veita sálfélagslegan stuðning. Hann hefur áður unnið fyrir Alþjóðaráð Rauða krossins í Nígeríu og Djibouti. Í Djibouti fólust verkefni Páls í að veita sendifulltrúum og starfsfólki ICRC í Jemen sálrænan stuðning, að meta þörf þeirra fyrir sálfélagslegan stuðning og setja fram tillögur um eflingu hans. Páll gegndi svipuðum störfum í Nígeríu en þar beindust þau aðallega að starfsfólki og sjálfboðaliðum nígeríska Rauða krossins.
Tengdar fréttir Búast við 600 þúsund flóttamönnum á næstu mánuðum Sameinuðu þjóðirnar segja að komandi vetur muni koma illa niður á flóttafólki í Evrópu. 5. nóvember 2015 11:49 Þrettán milljónir króna renna til hjálparstarfs á Grikklandi Rauði krossinn á Íslandi hefur ákveðið að veita 13 milljónir króna til að fjármagna áríðandi hjálparaðgerðir vegna neyðarástands á Grikklandi og svara með því kalli Alþjóðasambands Rauða krossins og Rauða hálfmánans. 9. nóvember 2015 06:00 Mest lesið Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Baldur til Eyja Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Seltjarnarnes heldur áfram að tapa Innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur Viðskipti innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent Trump segist vera að íhuga að draga saman seglinn í Þýskalandi Erlent „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Innlent „Hún er skrifuð af mér“ Innlent „Það er mikið verið að suða“ Innlent Fleiri fréttir Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Sjá meira
Búast við 600 þúsund flóttamönnum á næstu mánuðum Sameinuðu þjóðirnar segja að komandi vetur muni koma illa niður á flóttafólki í Evrópu. 5. nóvember 2015 11:49
Þrettán milljónir króna renna til hjálparstarfs á Grikklandi Rauði krossinn á Íslandi hefur ákveðið að veita 13 milljónir króna til að fjármagna áríðandi hjálparaðgerðir vegna neyðarástands á Grikklandi og svara með því kalli Alþjóðasambands Rauða krossins og Rauða hálfmánans. 9. nóvember 2015 06:00