Skólastjóri segir gjöf Gídeons ekki trúboð sveinn arnarsson skrifar 4. maí 2015 07:00 Verklagsreglur um heimsóknir trúar- og lífsskoðunarhópa voru samþykktar eftir fyrirspurn móður barns í 5. bekk. fréttablaðið/gva
Óánægju gætir með heimsókn Gídeonfélagsins í Stóru-Vogaskóla á Vatnsleysuströnd þar sem félagið afhenti börnum í 5. bekk Nýja Testamentið að gjöf. Foreldrar barnanna voru ekki látnir vita fyrir fram um heimsóknina. „Mistök sem skrifast á mig,“ segir Svava Bogadóttir, skólastjóri Stóru-Vogaskóla. Ingibjörg Axelsdóttir, foreldri barns í 5. bekk skólans, undrast að hafa ekki verið látin vita að til stæði að félagið afhenti börnum trúarrit kristinna manna. „Ég hefði viljað vita að þetta stæði til því þá hefði ég getað rætt við mitt barn um þetta. Þetta finnst mér vera trúboð og að mínu mati á trúboð ekki heima í grunnskólum landsins. Af því tilefni sendi ég póst á bæjaryfirvöld þar sem ég spurði út í verklagsreglur um svona heimsóknir og hvort ekki væri æskilegt að setja sér skýrar reglur,“ segir Ingibjörg. Þann 29. apríl síðastliðinn var málið tekið fyrir á bæjarstjórnarfundi í Vogum. Var bréf Ingibjargar lagt fram sem og nýjar verklagsreglur grunnskólans sem settar voru í kjölfar athugasemdar foreldra. Verklagsreglur voru samþykktar á þeim bæjarstjórnarfundi.SVava Bogadóttir Skólastjóri Stóru-Vogaskóla.Svava Bogadóttir, skólastjóri Stóru-Vogaskóla, segir ekki um trúboð að ræða þegar kristnir trúarhópar útdeila trúarritum kristinna manna til grunnskólabarna. „Þessari heimsókn var þannig háttað að Gídeonfélagið kom og afhenti eingöngu þeim börnum sem vildu Nýja Testamentið. Við teljum ekki um trúboð að ræða. Í kjölfar heimsóknarinnar ákváðum við að setja okkur verklagsreglur um heimsóknir trúar- og lífsskoðunarfélaga. Eftirleiðis verða engin trúarrit afhent fyrr en að loknum skóladegi. Einnig verða foreldrar hafðir með í ráðum,“ segir Svava. Ingibjörg segir verklagsreglur bæjarins þurfa að vera í ætt við þær sem tíðkast í Reykjavík. „Það er mín skoðun að trúarfélög eigi ekkert að vera í grunnskólum landsins,“ segir Ingibjörg. Svava segir það hafa verið mistök að láta foreldra ekki vita af því að félagið ætlaði sér að útdeila Nýja Testamentinu til barna í skólanum. „Að sjálfsögðu hefði það verið æskilegra að hafa samband við foreldra. Við tökum athugasemdina fegins hendi og skerpum á vinnureglum hvað þetta varðar. Það eru mistök að láta ekki foreldra vita og skrifast þau mistök á mig,“ segir Svava.
Mest lesið Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Erlent Munaði litlu að nýliði skákaði borgarstjóra Innlent Gríðarleg vonbrigði að reyndri konu sé ekki treyst Innlent „Eftir þetta getur enginn treyst honum“ Erlent Stóra verkefnið að vinna aftur traust borgarbúa Innlent Tvöfalt fleiri aldraðir leituðu hjálpar vegna ofbeldis Innlent Annar maður skotinn til bana af ICE Erlent Samfylkingin valdi sér borgarstjóraefni Innlent Stigmögnun í nágrannaerjum: „Hann vildi keyra á mig“ Innlent Valið á milli gömlu og nýju Samfylkingarinnar Innlent Fleiri fréttir Munaði litlu að nýliði skákaði borgarstjóra Stóra verkefnið að vinna aftur traust borgarbúa Gríðarleg vonbrigði að reyndri konu sé ekki treyst Pétur Marteinsson kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík Samfylkingin valdi sér borgarstjóraefni Valið á milli gömlu og nýju Samfylkingarinnar Gullhúðað afnám jafnlaunavottunar Tvöfalt fleiri aldraðir leituðu hjálpar vegna ofbeldis Vandræðagangur með skilaboð á versta tíma fyrir Heiðu Leita að öðrum til að taka við Ísafjarðarfluginu Allir hafi áhuga á Íslandi Biður Dóru Björt afsökunar eftir deilur um vetrarþjónustu Þrjátíu prósent Samfylkingarfélaga greitt atkvæði það sem af er Algengast að börn beiti foreldra sína ofbeldi og prófkjör Samfylkingarinnar „Enda ekki í nokkru einasta ástandi til að vera meðal fólks“ Árásarmaðurinn svartklæddi reyndist vera ættingi Stigmögnun í nágrannaerjum: „Hann vildi keyra á mig“ Gengst nú við skilaboðunum umdeildu Hægt að nálgast vottorð um að makinn hafi rangt fyrir sér Um 900 manns nú með lögheimili í Grindavík „Það átti að taka mig í karphúsið“ Selenskí undir miklum þrýstingi Tímamótaviðræður hafnar og ögurstund hjá Samfylkingunni Eldur í sendibíl á Miklubraut Arnar Grétarsson í stjórnmálin Gjörbreytt Langahlíð fyrir milljarð Segist ekki muna eftir að hafa sent skilaboðin „Einhver SA prins mættur til að láta sem allt sé bara kózý“ Endurtekin og alvarleg mál valda áhyggjum Hiti færist í leikinn: „Frægur karl með enga reynslu“ Sjá meira