Spurningalisti Blátt áfram gagnrýndur Anna Guðjónsdóttir skrifar 2. maí 2015 12:00 Hefur ekki fengið svör Berglind vildi fá að sjá spurningarnar og þau leyfi sem samtökin ættu að hafa til að leggja spurningalista fyrir börnin. Nordicphotos/Getty
Móðir stúlku í Háteigsskóla gerir alvarlegar athugasemdir við vinnubrögð samtakanna Blátt áfram eftir fyrirlestur þeirra um kynferðislegt ofbeldi fyrir nemendur í 8. bekk skólans. Foreldrar nemenda fengu ekki tilkynningu um fyrirlesturinn fyrr en eftir að hann var fluttur. „Með tilkynningunni kom fram að börnin ættu að svara spurningum í tengslum við fyrirlesturinn. Ég bað um að fá að sjá listann og þau leyfi sem þau ættu að hafa til að leggja slíka lista fyrir börnin. Ég hef ekki fengið nein svör,“ segir Berglind Gísladóttir, móðir nemanda. „Það getur vel verið að þetta séu saklausar spurningar, en foreldrar eiga að fá að vita um svona hluti. Þessi vinnubrögð tel ég að séu ekki leyfileg og brjóti gegn persónuvernd,“ segir Berglind. „Spurningarnar voru aldrei sendar eftir að ég hafði samband við skólayfirvöld.“ Guðrún Helga Bjarnadóttir, starfsmaður Blátt áfram sem flutti fyrirlesturinn, segir mikilvægt að foreldrar séu ekki látnir vita áður en fyrirlestrarnir eru haldnir. „Það eru dæmi um að börn og jafnvel systkinahópar sem verða fyrir ofbeldi heima hjá sér mæti ekki þann dag sem fyrirlesturinn fer fram. Ef það er verið að brjóta á þeim vilja þeir aðilar ekki að börnin fái fræðslu um það,“ segir Guðrún. Hún segir að börnin fái spurningalista eftir fyrirlesturinn sem þau séu ekki skyldug til að svara. Listarnir eru nafnlausir. Berglind segir að í póstinum sem foreldrar fengu hafi komið fram að bekkurinn hefði fengið fyrirlestur frá Guðrúnu Helgu um kynferðislegt ofbeldi. „Ég bað þá um að fá upplýsingar um hver menntun hennar væri og hvers vegna hún væri talin fær til að ræða svona viðkvæmt málefni við grunnskólabörn. Ég fékk þau svör að hún væri leikskólakennari,“ segir Berglind. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins voru spurningarnar á listanum flestar almennt í tengslum við fyrirlesturinn.Hvað lærðir þú á fyrirlestrinum? Hvað þótti þér áhugaverðast? Kom eitthvað á óvart? Eitthvað sem þú vilt spyrja um? Eitthvað sem þú vilt fá að vita um kynferðislegt ofbeldi? Á listanum voru einnig spurningar um hvort börnin teldu sig treysta einhverjum fullkomlega og ef svo væri hver það væri. Skólastjóri Háteigsskóla segir að mistök hafi átt sér stað með spurningalistanum og að málið verði skoðað frekar. Hann segir þó að samstarfið hafi gengið vel í gegnum árin. Hann vildi ekki tjá sig meira um málið að svo stöddu.
Mest lesið Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Fleiri fréttir Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Sjá meira