Vill lífeyrissjóði áhrifalausa Kolbeinn Óttarsson Proppé skrifar 1. maí 2015 12:00 Nái tillaga Kristjáns hljómgrunni verða fulltrúar lífeyrisþega áhrifalausir í stjórnum þeirra fyrirtækja sem sjóðirnir eiga í. Vísir/Pjetur „
Efnið var það að lífeyrissjóðirnir skipti sér ekki af aðalfundum í félögum sem þeir fjárfesta í,“ segir Kristján Loftsson, einn eigenda HB Granda, um tillögu sem hann lagði fram á ársfundi Gildis lífeyrissjóðs 15. apríl. Tillaga Kristjáns var of seint fram komin til að teljast tæk á fundinum, en hann hyggst vinna þessari skoðun fylgi innan Samtaka atvinnulífsins (SA) og vill að þau leggi fram álíka tillögur í fleiri sjóðum. „Aðalmálið er það að lífeyrissjóðir eiga að fjárfesta. Þeir eiga að hugsa um hag fjárfesta og það er ekki þeirra hlutverk að skipta sér af hlutafélögum sem þeir fjárfesta í. Ef þeir eru óánægðir með félögin eiga þeir bara að selja hlut sinn í þeim.“ Sigurður Bessason, formaður Eflingar, er algjörlega andsnúinn þessari nálgun, en verkalýðshreyfingin á sína fulltrúa í stjórnum lífeyrissjóða. „Ég benti á það að ég tel þetta vera algjörlega ranga nálgun og það hefur sýnt sig að það er mjög eðlilegt að lífeyrissjóðirnir reyni að gæta sinna mála. Þeir eiga náttúrulega að gera það á öllum vígstöðvum,“ segir Sigurður.Kristján Loftsson.Hann segir að þvert á móti eigi lífeyrissjóðirnir að beita sér fyrir góðum málum innan félaganna sem þeir eiga hlut í. „Ég tel að það geri þeir sem fulltrúar þess fjár sem er inni í lífeyrissjóðunum og stjórnir lífeyrissjóðanna eigi ævinlega að hafa skoðun á því sem gerist inni í fyrirtækjum, bæði hvað varðar tillögur sem liggja fyrir og síðan að koma með góðar tillögur inn á ársfundi sem geta verið gagnlegar.“ Kristján segir hins vegar að lífeyrissjóðirnir eigi ekki að vera með puttana í rekstri fyrirtækja. „Þessir gæjar ætla að gína yfir öllu. Við kynntumst því á fundum í gamla daga þegar Lífeyrissjóður verslunarmanna sagðist styðja mann sem er í púra samkeppni í útflutningi á sjávarafurðum við HB Granda.“ Hann segist munu beita sér fyrir því að SA flytji álíka tillögur í fleiri lífeyrissjóðum og mun endurflytja tillöguna að ári hjá Gildi ef með þarf. En hefur hann stuðning innan SA? „Flestir sem ég tala við eru inni á þessari línu, það þorir bara enginn að segja frá því.“
Mest lesið Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Innlent Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík Innlent „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Innlent Gerir hlé á „frelsisaðgerðum“ í Hormússundi Erlent Fjórar „brúðir ISIS“ snúa aftur til Ástralíu Erlent Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Innlent Hantaveiruskipið á leið til Kanarí og kemur ekki til Íslands Erlent Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Innlent Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Innlent Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Innlent Fleiri fréttir Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Örlítið fleiri fæðingar en frjósemin stendur í stað Ein minniháttar líkamsárás á annars rólegri vakt lögreglu Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Vill fjölga börnum sem eru eingöngu á brjósti til sex mánaða Burðardýr í bráðaaðgerð og hindranir í samstarfi Gögnum nemenda mögulega stolið af Canvas Mælti sér mót við barn og réðst á það Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Ný könnun í Kópavogi: Meirihlutinn heldur en Samfylking á siglingu Sættir sig ekki við niðurstöðu klofins Mannréttindadómstóls Hátt í hundrað heimili hugsanlega yfir tekjumörkum hjá Félagsbústöðum Herjólfur siglir frá Landeyjum og um þrjú prósent hjá Félagsbústöðum með tekjur umfram skilyrði Allt í blússandi botni í Bolungarvík þrátt fyrir lokun Kjörbúðarinnar Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Pallborðið: Kópavogsoddvitar mætast og glæný könnun Vonarneisti eftir erfiðan vetur Erla Björg ráðin menningarritstjóri Rúv Veðsjúkir giska á að Hildur verði næsti borgarstjóri Enn aðeins hægt að sigla til Landeyjahafnar við kjöraðstæður Tímabært að ræða einhverfu kvenna Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Tvær líkamsárásir og nokkrir þjófnaðir á höfuðborgarsvæðinu Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár Sjá meira