Krakkarnir í Réttó fylkja sér að baki aðstoðarskólastjóranum Garðar Örn Úlfarsson skrifar 18. apríl 2015 07:30 Vilhjálmur Stefánsson, Margrét Eva Sigurðardóttir, Styrmir Steinn Sverrisson og Anna María Birgisdóttir, fulltrúar nemendaráðs Réttó, segjast hafa fengið frábærar móttökur þegar þau afhentu Ragnari Þorsteinssyni, sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar, undirskriftir nemdanda í gær.
Nemendur í Réttarholtsskóla vilja að aðstoðarskólastjórinn Jón Pétur Zimsen taki við sem skólastjóri nú þegar Hilmar Hilmarsson er að hætta. „Við tökum ekki annað í mál og óskum eftir því að Jón Pétur Zimsen taki við stöðu skólastjóra,“ segir í yfirlýsingu sem fulltrúar nemendaráðsins í Réttó afhentu í gær Ragnari Þorsteinssyni, sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar. Með fylgdu undirskriftir langflestra af ríflega 300 nemendum skólans. Jón Pétur er einn tæplega tuttugu sem sóttu um stöðuna. „Jón Pétur Zimsen er opinn og heiðarlegur og vill öllum vel og er jafnframt mikill gleðigjafi,“ segir í yfirlýsingu nemendanna. „Réttarholtsskóli er okkar annað heimili og okkur vill líða vel hér og það er stefna Jóns Péturs, hann er eins konar pabbi nemenda.“Hér sjást drög að áskoruninni sem fylgdi undirskriftum Rétthyltinga til fræðsluyfirvalda í Reykjavík.Nemendurnir vonast til að mark verði tekið á þeim, „þar sem við höfum líka rödd og svo Réttarholtsskóli geti haldið áfram að vera ein stór fjölskylda í komandi framtíð.“ Einn nemendaráðsmanna undirstrikar að nemendurnir standi að málinu á eigin spýtur. „Þetta er alfarið við að hugsa um framtíð annarra krakka. Okkur finnst eins og Reykjavíkurborg sé löngu búin að ákveða sig að ráða konu til að fá jafnrétti. En okkur finnst ekki að kyn eigi að skipta máli heldur aðeins hæfni reynsla og árangur – þar sem Jón skorar 10 í öllum flokkum,“ segir Styrmir Steinn Sverrisson.
Mest lesið Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Innlent Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Innlent Fleiri fréttir Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Sjá meira