Skoða ábendingar frá OECD svavar hávarðsson skrifar 27. janúar 2015 07:00 Ísland verður að leita jafnvægis milli vaxtar orkugeirans og ferðaþjónustu og umhverfisverndar. fréttablaðið/gva
Sigrún Magnúsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, hefur skipað starfshóp til að yfirfara og meta ráðleggingar sem fram koma í nýlegri heildarúttekt Efnahags- og framfarastofnunarinnar, OECD, á stöðu og þróun umhverfismála á Íslandi 2001-2013. Skýrslan er yfirgripsmikil úttekt á framkvæmd umhverfismála á Íslandi og eru þar settar fram margar ábendingar og ráðleggingar til íslenskra stjórnvalda, sem snúa m.a. að löggjöf, innviðum, hagrænum stjórntækjum og fleiri grunnþáttum varðandi framþróun málaflokksins. Starfshópurinn mun skoða þessar ráðleggingar OECD með tilliti til framkvæmdar og eftirfylgni. Meðal þess sem skýrslan tekur til, til hliðar við þá skoðun að heilt yfir sé staðan í umhverfismálum jákvæð hér á landi, er að fyrirsjáanlegur sé ágreiningur vegna ólíkra hagsmuna um landnýtingu á milli þeirra sem vilja annars vegar nýta náttúruna til orkuframleiðslu og hins vegar þeirra sem vilja auka náttúrutengda ferðaþjónustu. Eins var það álit OECD að sívaxandi ferðamannastraumur auki álag á viðkvæma náttúru til muna. Iðnaður í landinu er einsleitur og reiðir sig verulega á ódýra, hreina orku vegna þess hversu orkufrekur hann er. Þetta eru helstu áskoranir sem Ísland glímir við, eða mun takast á við á næstu árum. Þessu til viðbótar er landeyðing vandamál en hún er knúin áfram af styrkjakerfi í landbúnaði, sem þarfnast endurskoðunar, kom fram þegar skýrslan var kynnt í september í fyrra.
Mest lesið Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Fleiri fréttir Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða ESB ýmist í Meistaradeildinni eða um miðja aðra deild Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China setur beint flug í sölu Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Lögregla og björgunarsveitir leita að manneskju á Akureyri „Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“ Mikilvægt að draga lærdóm af gerð gatnamótanna „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Segir málið verða að hafa afleiðingar fyrir Skúla Tómas Vestmannaeyjabær áfrýjar til Landsréttar Segir Dag plata með úreltri skýrslu Sjá meira