Inflúensa og RS-sýking auka á vanda í verkfalli Kristjana Guðbrandsdóttir skrifar 6. janúar 2015 07:00 Álag eykst dag frá degi í viðkvæmri starfsemi Landspítalans. Vísir/Ernir Eyjólfsson
Í síðustu viku greindust nokkrir Íslendingar með inflúensu og RS-sýkingu. Ólafur Baldursson, framkvæmdastjóri lækninga, segir aðgerðir lækna skella á spítalanum á versta tíma en í janúarmánuði herja jafnan skæðar pestir á landsmenn. „Það gerist nánast alltaf á þessum árstíma að það er enn meiri aðsókn að spítalanum en venjulega. Verkefnin okkar aukast á þessum tíma og það gefur augaleið að þegar um er að ræða verkfall lækna á sama tíma, þá fer þetta tvennt illa saman. Það eykur enn líkur á því að það verði erfitt fyrir okkur að tryggja öryggi sjúklinga. Það er barist við það á hverjum degi,“ segir Ólafur. Á síðustu dögum hafa nokkrir einstaklingar greinst með inflúensu (bæði inflúensa A og B) og RS. Þessar veirusýkingar ganga alltaf hér á landi á þessum árstíma og má búast við að fleiri einstaklingar greinist með þessar sýkingar á næstu vikum. Inflúensa getur verið skæður sjúkdómur, einkum hjá fólki með undirliggjandi sjúkdóma. RS sýkir einkum börn á fyrstu aldursárum og getur valdið alvarlegum einkennum hjá yngstu börnunum. Löng bið og þungt andrúmsloftÓtti við mistök Læknar hafa svarið eið um að hlúa af alúð að sjúklingum sínum. Þeim líður illa og finnst viðræður þokast of hægt. Framkvæmdastjórar á spítalanum funda nú daglega og taka stöðuna í verkfalli lækna. Fréttablaðið/GVAÁ bráðamóttökunni í gær var biðin löng og ljóst að aðgerðir lækna tefja starfsemina þar allverulega. Ólafur segir bráðamóttökuna ekki mega við neinum truflunum á starfsemi sinni. „Allt árið um kring er starfsemin viðkvæm og má ekki við neinum truflunum,“ segir hann og óskar þess að deilan leysist skjótt því ástandið sé varasamt. „Við á Landspítalanum erum klemmd á milli deiluaðila og óskum eftir því að þeir leysi deiluna. Ástandið eins og það er núna er gríðarlega varasamt og þetta geta verið skæðar pestir sem ganga á þessum tíma. Fréttablaðið greindi í gær frá sex konum sem biðu þess að fá að vita hvort þær komast í keisaraskurð. Fá þær að fara í aðgerðirnar? „Þær eru í mjög nákvæmu eftirliti og gætt vel að heilsu þeirra,“ segir Ólafur. Andrúmsloft á spítalanum er þungt. „Maður hefur áhyggjur af starfsandanum við þessar aðstæður þegar samningar dragast og læknar fá á tilfinninguna að viðræður gangi hægt. Það togast á í læknum ýmsar tilfinningar því við höfum skrifað undir eiða sem við viljum ekki bregðast. Læknum finnst þetta óþægileg staða og óttast alvarlegar afleiðingar og mistök vegna verkfallsaðgerða í vikunni.“
Mest lesið Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Erlent Fleiri fréttir Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Sjá meira