Slagsmálahópurinn á Facebook sprakk út Jakob Bjarnar skrifar 9. febrúar 2015 14:02 Samkvæmt heimildum Vísis varð eitt myndband að miklu báli á augabragði; meðlimir slagsmálasíðu urðu um þúsund áður en krakkarnir gátu svo mikið sem deplað auga.
Lögreglan rannsakar nú skipulögð slagsmál meðal barna og unglinga sem fara fram í Vogahverfinu og víðar í Reykjavík. Slagsmálin eru harkaleg en rannsókn lögreglunnar er á frumstigi. Myndböndum af skipulögðum slagsmálum barna og unglinga er dreift á lokaðri síðu á Facebook. Stöð 2 sagði frá málinu í gær en á myndböndunum má sjá að slagsmálin eru býsna harkaleg. Jóhann Karl Þórisson fer með rannsóknina hjá lögreglunni, en hún er nú á frumstigi. „Við fengum upplýsingar um þetta fyrir helgi og erum að hefja rannsókn á þessu; um hvað þetta fjallar hreinlega.“Ekkert sérstakt sem hönd á festir í tíðarandanumSlagsmál meðal krakka og unglinga eru í sjálfu sér ekkert nýtt en nú virðist ríkja sannkallað æði – talsvert stór hópur fylgist með og tekur þátt. Jóhann Karl segist ekki vita til þess að neitt sérstakt sé í tíðarandanum nú sem kann að skýra þetta. „Nei, ekkert sem hönd er á festandi; kannski tölvuleikir eða einhverjar bíómyndir? Það hafa verið sögusagnir um gengjaslagsmál í gegnum tíðina og slagsmál í Öskjuhlíðinni í gamla daga en það er ekkert sérstakt í tíðarandanum í dag sem býður uppá meiri hörku,“ segir Jóhann Karl sem stefnir að því að komast til botns í hvað er í gangi. Samkvæmt heimildum Vísis var stofnað til síðunnar í september, þá í tengslum við birtingu myndbands af slagsmálum í Vogahverfinu. Áður en þeir sem það gerðu vissu hvaðan á sig stóð veðrið sprakk síðan út og voru á tímabili 900 meðlimir skráðir, flestir á á grunn- og framhaldsskólaaldri. Í kjölfarið var efnt sérstaklega til slagsmála, þau mynduð á síma og birt á síðunni.Vaxandi órói meðal ungmenna Jónína Ólöf Emilsdóttir skólastjóri í Vogaskóla vill taka það skýrt fram að þetta sé ekki bundið við Vogaskóla fremur en aðra skóla borgarinnar. „Þetta er samfélagslegur vandi, ég get ekki séð þetta öðru vísi. Ekkert endilega hér frekar en annars staðar en það virðist meiri órói en verið hefur, hver sem ástæðan er? Ég hef það á tilfinningunni,“ segir Jónína í samtali við Vísi. Hún hefur ekki svör við því hvað veldur, nema ef vera kynni aukin félagsleg einangrun barna, sem á sín samskipti á netinu og þar gerist allt með miklum hraða. Jónína bendir á að umfjöllun geti orkað tvímælis, eftir umfjöllun Stöðvar 2 hafi fjöldinn aukist á síðunni. Ef um er að ræða blóðug slagsmál þá beri að tilkynna það lögreglu og hún hafi þá tal af viðkomandi. Spurð segir hún að skólayfirvöld séu að sjálfsögðu að skoða málið. „Við erum að vinna með forvarnir og Marita fræðslu og brýnum fyrir foreldrum að vera vakandi; hvar eru börnin ykkar?“
Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Innlent „Áfall fyrir starfsfólk“ Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Innlent Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur Innlent Fleiri fréttir Félag Ragnars Freys telur uppsögn hans ólögmæta Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi „Áfall fyrir starfsfólk“ Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Sjá meira