Kjörsókn meiri í rafrænum íbúakosningum í Reykjavík Stefán Árni Pálsson skrifar 24. febrúar 2015 16:25 Vesturbæjarlaug. mynd/aðsend
Talsvert meiri kjörsókn er í rafrænum íbúakosningum í Reykjavík í ár miðað við í fyrra. Á milli klukkan þrjú og fjögur í dag höfðu 5.700 manns kosið en þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. Kosningunum lýkur á miðnætti í kvöld, þriðjudaginn 24. febrúar og því er enn hægt að greiða atkvæði. „Kjörsóknin er meiri en í fyrra en þá voru ríflega 5.200 atkvæði talin upp úr hinum rafræna kjörkassa,“ segir Sonja Wiium verkefnisstjóri Betri hverfa 2015. Þetta er í fjórða sinn sem rafrænar kosningar um Betri hverfi eru haldnar í Reykjavík. Kosningarnar snúast um smærri verkefni í hverfum borgarinnar en í þeim er kosið á milli innsendra hugmynda borgarbúa. „Það er auðvitað ánægjuefni að fleiri taki þátt nú en í fyrra,“ segir Sonja. „Talsvert fleiri sendu inn hugmyndir að verkefnum í haust þegar auglýst var eftir hugmyndum frá íbúum. Það má því merkja aukinn áhuga borgarbúa á þessu fyrirkomulagi.“ Kosningunum lýkur formlega á miðnætti í kvöld en kosningavefurinn verður opinn eitthvað fram eftir nóttu til að forðast álag sem getur myndast á vefinn við lokun. Reykjavíkurborg hvetur alla sem hafa náð 16 ára aldri og eiga lögheimili í Reykjavík til að kjósa hér.Kjörnefnd á vegum Reykjavíkurborgar hefur talningu strax í fyrramálið. Í henni sitja Helga B. Laxdal, skrifstofustjóri skrifstofu borgarstjórnar, Sonja Wiium verkefnisstjóri Betri Reykjavíkur og Eggert Ólafsson gæðastjóri skrifstofu þjónustu og reksturs. Úrslit kosninganna Betri hverfi 2015 ættu að verða ljós strax á fimmtudag.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ Innlent Á spítala eftir misheppnaða aftöku Erlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Fleiri fréttir Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Sjá meira