Vilja ala bæði bleikju og lax á timbri sem gengur af Svavar Hávarðsson skrifar 24. febrúar 2015 13:00 Beitarfiskur - Stækkar jafn hratt eða hraðar og af venjulegu fóðri úr fiskimjöli. mynd/rJ
Þekkingar- og rannsóknafyrirtækið Matís og þróunarfélagið Sæbýli ehf. á Eyrarbakka hafa náð góðum árangri í samstarfi við sænska nýsköpunarfyrirtækið SP Processum við að þróa fiskafóður úr aukaafurð sem fellur til við pappírsframleiðslu úr trjáviði. Beitarfiskur, eða tilapía, vex álíka vel og jafnvel betur á trjáfóðrinu en af hefðbundnu fóðri úr fiskimjöli. Næsta skref verður að þróa fóður sem hentar vel í silungs- og laxeldi. Athygli á verkefninu er vakin á vef Skógræktar ríkisins þar sem segir jafnframt að þessi nýja tegund prótíns sem unnin er úr timburafurðum gæti í fyllingu tímans skipt miklu máli ef rækta má tré og vinna úr þeim hráefni í fiskafóður og gæti það dregið úr umhverfisálagi vegna fiskeldis í heiminum. Við þróun þessa nýstárlega fóðurs útbjó Matís mismunandi samsetningar af fóðri sem síðan var gefið beitarfiski í eldiskerum Sæbýlis á Eyrarbakka. Fram undan eru frekari tilraunir á stærri skala og þróun viðskiptalíkans um sölu á afurðunum. Lagt hefur verið af stað með áframhald verkefnisins og nýtur það styrks frá Nordic Innovation, norrænu nýsköpunar- og viðskiptastofnuninni.Ragnar Jóhannsson.Ragnar Jóhannsson, fagstjóri hjá Matís, segir að um sé að ræða aðferð til að nýta sellulósa úr timbri [fjölsykra sem er eitt af næringarefnum í plöntum]. Þegar er efnið nýtt til lyfjaframleiðslu, til fatagerðar, í steypu og framleiðslu á etanóli. Í mjög einfaldaðri mynd eru niðurbrotssykrur sem eftir verða notaðar sem orkugjafi fyrir myglusveppi. Með gerjuninni fæst einfrumuprótín sem nota má við framleiðslu á fiskafóðri. „Með nýjustu tækni þurfa framleiðendur að huga að nýjum afurðum í stað pappírs – afurðum sem eru einhvers virði. Þetta er ein hugmyndin. Við skoðuðum þetta fyrir beitarfisk, en líka lauslega fyrir bleikju og það kom alveg ágætlega út,“ segir Ragnar en sú niðurstaða er allrar athygli verð þar sem íslensk fyrirtæki eru leiðandi í bleikjueldi í heiminum. Framhaldið verður að þróa áætlanir fyrir sænska viðarvinnslu- og orkufyrirtækið Domsjö Fabriker sem framleiðir umrætt efni í stórum stíl og gera alvöru tilraunir með fóðrið bæði fyrir bleikju og lax. Hráefnið til tilraunanna er frá þessari verksmiðju komið, en yrði viðbót við þeirra framleiðslu ef vel tekst til.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Innlent Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ Innlent Fleiri fréttir Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Sjá meira