Seinheppnir innbrotsþjófar í Grafarholti urðu bensínlausir í Kópavogi Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 24. febrúar 2015 12:07 Frá aðgerðum lögreglu í Kópavogi í dag.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu virðist hafa verið fljót að upplýsa innbrot í búninga- og skrifstofuaðstöðu íþróttafélagsins Fram í Grafarholti í morgun. Rúmum þremur klukkustundum síðar voru tveir handteknir á stærðarinnar pallbíl vegna málsins. Reyndist pallbíllinn einnig stolinn. Jóhanna Halldórsdóttir, rekstrarstjóri íþróttahúss Fram í Safamýri, segir að boð hafi borist frá Öryggismiðstöðinni upp úr klukkan átta í morgun um innbrot í húsnæði Fram í Grafarholti. Svo heppilega vill til að hún býr á sömu slóðum og var fljót á staðinn. Innbrotsþjófarnir voru á bak og burt en traustur nágranni hafði orðið vitni að stórum svörtum og ljóslausum pallbíl bruna í burtu skömmu fyrr. „Þeir brutu og skemmdu en ég held að þeir hafi ekki stolið miklu enda ekki mikil verðmæti að finna þarna,“ segir Jóhanna. Hún var hæstánægð að lögreglunni hafði tekist að klófesta innbrotsþjófana en það fékk blaðamaður staðfest hjá lögreglu rétt fyrir tólf.Voru á stolnum bíl Ásgeir Þór Ásgeirsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni í Kópavogi, segir að ábending hafi borist um svipaðan bíl nærri Smáralind í Kópavogi fyrir hádegi. Ekki hafi verið um eftirför að ræða heldur hafi lögregla leitað bílsins. Svo heppilega vildi til að pallbíllinn varð bensínlaus í þann mynd sem lögregla hafði uppi á honum. Í ljós kom að bíllinn var einnig stolinn. Verið var að leiða mennina tvo inn í fangaklefann þegar blaðamaður náði tali af lögreglu. Sagðist Ásgeir telja yfirgnæfandi líkur á að um sama bíl var að ræða og notaður var í innbrotinu í morgun. Nú yrði farið í að hafa uppi á eiganda bílsins en hann hefur ekki verið tilkynntur stolinn. Jóhanna segir að ekki sé um einsdæmi í Grafarholti að ræða því undanfarið hafi borið á endurteknum innbrotum í hverfinu í Dalskóla.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Fleiri fréttir Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Sjá meira