Samþykkti breytingu án aðkomu nefndar Sveinn Arnarsson skrifar 25. febrúar 2015 09:00 Nýsamþykkt miðbæjarskipulag gengur út á að opna svæðið og á húsið að víkja. Oddviti Samfylkingarinnar bæði teiknaði skipulagið þar sem húsið á að víkja sem og að teikna breytingar á húsinu. Fréttablaðið/Auðunn
Skipulagsstjóri Akureyrarbæjar, Pétur Bolli Jóhannesson, samþykkti uppbyggingu og breytingu á húsi við göngugötuna á Akureyri en í nýsamþykktu miðbæjarskipulagi á húsið að víkja. Breytingin á húsinu fór ekki fyrir skipulagsnefnd né heldur í grenndarkynningu. Oddviti Samfylkingarinnar á Akureyri, sem er arkitekt, vann bæði að hönnun miðbæjarskipulagsins sem og að teikna breytingar á húsinu sem á að víkja. Húsið, sem nefnist Braunshús og stendur við Hafnarstræti 106, á að víkja samkvæmt samþykktu miðbæjarskipulagi Akureyrar. Segir í skipulaginu að tilgangurinn sé að koma á gönguás í gegnum miðbæinn og húsið þurfi að víkja fyrir þessari „þungamiðju skipulagstillögunnar“, eins og hún er kölluð.Logi Már EinarssonSkipulagsstjóri segir málið ekki hafa átt erindi við nefndina. Logi Már Einarsson, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar, vann að hönnun miðbæjarskipulagsins sem var samþykkt þann 6. maí 2014. Tuttugu dögum síðar, eða fjórum dögum fyrir sveitarstjórnarkosningar, sendir arkitektastofa Loga Más uppdrátt af breytingum á téðu húsi. Þann 23. október síðastliðinn samþykkti svo skipulagsstjóri breytingarnar á húsinu án þess að bera það undir skipulagsnefnd. „Það er ekki þörf á því að að fara með málið fyrir nefndina. Ég hef fullnaðarheimild til að klára byggingarmál og þetta átti ekkert erindi í skipulagsnefnd,“ segir Pétur Bolli skipulagsstjóri. „Það er ekki verið að gera breytingar á húsinu. Sótt var um byggingarleyfi eins og hvert annað byggingarmál sem ég tók afstöðu til.“Margrét Kristín Helgadóttir„Veigamikil breyting á húsi sem samkvæmt skipulagi á að víkja“ Margrét Kristín Helgadóttir, bæjarfulltrúi Bjartrar framtíðar, telur hins vegar að hér sé ekki um einhverjar lítilsháttar breytingar á húsinu að ræða. Telur hún eðlilegt að skipulagsnefnd bæjarins fjalli um málið í stað þess að embættismaður taki ákvörðunina fram hjá nefndinni. „Þetta er veigamikil breyting á húsi sem samkvæmt skipulagi á að víkja og mjög mikilvægt að hin pólitískt skipaða skipulagsnefnd sé inni í málinu og standi að baki ákvörðun skipulagsstjóra,“ segir Margrét Kristín. Hún telur óheppilegt að Logi Már hafi komið sér í þessa stöðu. „Þetta er vissulega staða sem ég myndi sjálf ekki kæra mig um að vera í. Ég hugsa að bæjarbúar vildu gjarnan heyra hvernig hann lítur á málið, hvort hann telji þetta sjálfur óheppilegt eftir á að hyggja.“
Mest lesið Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Innlent „Verið að herja á fólk sem er búið að missa maka“ Innlent Utanríkisráðherrann lýsir árásunum sem urðu Khamenei að bana Erlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Maður sem féll í Ölfusá fundinn Innlent Fleiri fréttir Opna senn fyrir atkvæðagreiðslu utan kjörfundar Bandero innan lögsögunnar á ný Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Aukið aðgengi að áfengi auki neyslu Regnboginn verði málaður aftur en með breyttu sniði „Verið að herja á fólk sem er búið að missa maka“ „Mikilvægast að þetta verði ekki eins og einhver hótelsundlaug á Tenerife“ Bandero stefnir í átt að Íslandi á ný Heimurinn aftur orðinn flóknari en NATO muni aðlagast Mikið fylgistreymi milli Miðflokksins og Sjálfstæðisflokksins Toppurinn þegar 450 manns hlupu á eftir Matt Damon Sjálfstæðisflokkur mælist stærstur í fyrsta sinn frá kosningum Mikil tíðindi í nýrri fylgiskönnun Maskínu Þróunin mælist áfram hæg en stöðug Annað innbrotið á skömmum tíma: Leiðinlegt að stolið sé frá litla manninum á horninu Segir sama starfið nú auglýst að nýju:„Pínu sárt að horfa upp á þetta“ Flugmennirnir sviptir flugréttindum Fyrrum bæjarstjóri og bankastjóri leiða stjórn Landspítalans „Fólk bara skammast sín svo rosalega mikið“ Málaður regnbogafáni gæti reynst of sleipur Skúli fagnar með „sannleikann að vopni“ Samherji og Guðrún Karls berjast saman gegn fíknidjöflinum Ástarsvik sífellt algengari og rannsókn lokið í Eyjum Eftirlitsmenn Strætó báðu um að fá að klæðast stunguvestum Fórnuðu gúmmístígvélunum við að slökkva sinueld á Ströndum Ekki auðvelt að skrifa grein sem þessa Ómálefnalegir dónar fara í skammarkrókinn „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ „Maður vill trúa kúnnunum sínum“ Hætta rannsókn á andláti á Hraunbúðum Sjá meira