Óþolandi lýðræði í krafti meirihlutans Garðar Örn Úlfarsson skrifar 25. febrúar 2015 07:15 Kristinn Þór Jakobsson, bæjarfulltrúi Framsóknarflokks í Reykjanesbæ. „
Það er óþolandi lýðræði og ekki í anda nýrra sveitarstjórnarlaga að tilnefning áheyrnarfulltrúa sé háð túlkun pólitískra andstæðinga,“ segir Kristinn Þór Jakobsson, eini bæjarfulltrúi Framsóknar í Reykjanesbæ, vegna umræðu um áheyrnarfulltrúa í ráðum og nefndum. Líkt og fulltrúar minnihlutaframboða í Garðabæ gerðu eftir síðustu kosningar óskaði Kristinn eftir því að fá áheyrnarfulltrúa í ýmsum fagráðum Reykjanesbæjar en því var synjað. Hann segir ótækt að sveitarstjórnarlögin séu þannig að meirihlutinn í hverri sveitarstjórn geti ákveðið eftir sínum hentugleika hvort litlu framboðin fái áheyrnarfulltrúa eða ekki. „Þannig að lýðræðið er háð túlkun meirihlutans. Það eru svona vinnubrögð sem koma í veg fyrir aukið lýðræði og gegnsæi og traust innan bæjarstjórnar.“ Að sögn Kristins missir hann af allri umræðu um flest mál því hún fari fram í fagráðunum áður en þau komi til bæjarstjórnar. „En ég kreisti það út að fá aðgang að öllum skjölum sem fylgja nefndarfundunum en þannig var það ekki áður.“Gunnar EinarssonGunnar Einarsson, bæjarstjóri í Garðabæ, sagði í samtali við fréttastofu í gær að launakostnaður og samskiptaörðugleikar við M-lista í Garðabæ væru ástæður þess að framboðið fengi ekki áheyrnarfulltrúa í nefndum bæjarins. Þá bendir Gunnar á að engar fastmótaðar reglur séu um áheyrnarfulltrúa í lögum. „Í fyrsta lagi þá hefur lýðræðið talað og M-listinn hefur ekki fengið það kjörgengi að eiga fulltrúa í þessum nefndum. Í öðru lagi þá viljum við ekki blása út báknið. Síðan hefur þessi samstarfsvilji ekki verið til staðar við M-listann,“ segir Gunnar.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ Innlent Á spítala eftir misheppnaða aftöku Erlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Fleiri fréttir Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Sjá meira