Sjöundi hver stúdent sýndi hættumerki lotugræðgi í nýrri könnun ingvar haraldsson skrifar 6. janúar 2015 20:41 Páll Biering segir að honum hafi komið á óvart hve margir nemendur noti hægðarlosandi lyf en 4,5 prósent og 2,5 prósent svarenda í könnunum tveimur sögðust hafa notað slík síðustu þrjá mánuði. vísir/stefán
Ríflega sjöundi hver nemandi við Háskóla Íslands sem tók þátt í tveimur könnunum á vegum Hjúkrunarfræðideildar háskólans sýndi hættumerki vegna lotugræðgi og þyrfti að leita sér aðstoðar vegna þess. Þetta eru niðurstöður rannsóknar sem Páll Biering, dósent í geðhjúkrun hjá Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands, kynnti á ráðstefnu um rannsóknir í líf- og heilbrigðisvísindum við Háskóla Íslands í dag. Þar kom einnig fram að 9,1 prósent og 7,6 prósent svarenda í könnunum tveimur höfðu framkallað uppköst síðustu þrjá mánuði. Páll segir hlutfallið fremur hátt og bendi til þess að vandamálið eigi við víðar en bara hjá háskólastúdentum. „Ég geti ekki ímyndað mér að þetta sé eitthvað öðruvísi hjá ungu fólki almennt. Þó það sé oft talið í erlendum rannsóknum að stress sé meira hjá háskólanemum er meirihlutinn af ungu fólki í einhverskonar námi og því undir álagi,“ segir Páll. Páll segir að þrátt fyrir að hann seti þann fyrirvara á niðurstöðurnar að vandamálið gæti verið ofgreint vegna lágs svarhlutfalls þá sé staðan ekki góð. „Þetta eru svo margir einstaklingar og hlutfallið er talsvert hátt. Ef hlutfallið væri helmingi lægra fyndist mér það samt hátt,“ segir Páll. Hann segir könnunina fyrst og fremst lýsandi fyrir konur innan háskólasamfélagsins en um 20 prósent kvenkyns nemenda í Háskóla Íslands tóku þátt í könnuninni en einungis 7 prósent karla. Alls tóku 1280nemendur þátt í fyrri könnuninni og 1115 þátt í þeirri seinni.Skýr tengsl milli neikvæðar sjálfsmyndar og stress Þá segir Páll niðurstöðuna sýna skýr tengsl milli neikvæðar sjálfsmyndar, stress og svo lotugræðgi og megrunarþráhyggju. „Það er mjög sterk fylgni milli lélegrar líkamsímyndar og streitu í daglegu lífi. 57 prósent þeirra sem hafa neikvæða líkamsímynd finna til streitu í daglegu lífi. Bæði þeir sem eru yfir og undir kjörþyngd og þeir sem greinast með megrunarþráhyggju og lotugræðgi hafa neikvæða líkamsímynd og upplifa mikla streitu og þar að leiðandi lélega geðheilsu,“ segir Páll Það kom Páli á óvart hve margir sögðust notast við hægðarlosandi lyf til að létta sig en 4,5 prósent og 2,5 prósent svarenda í könnunum tveimur sögðust hafa notað slík lyf síðust þrjá mánuði. „Það kom mér á óvart að þetta væri svona algengt. Það virðist vera talsverður fjöldi fólks sem notar lyf til að létta stig.“Megrunarkúra ala á óánægju Að mati Páls þyrfti að grípa til aðgerða strax í framhaldsskólum til að sporna við vandamálinu og þá séu megrunarkúrar ekki lausnin. „Það þyrfti að beita forvörnum í framhaldskólum og ekki beina þeim bara að mataræði og hreyfingu heldur að hjálpa fólki að sætta sig við eigin líkama. Það er alltaf verið að reka áróður fyrir skyndilausnum eins og megrunarkúrum sem sýnt hafa sig í rannsóknum skili litlum árangri í baráttunni við ofþyngd og geta verið orsakavaldar af þessum átröskunum. Það er alltaf verið að hamra á því í sambandi við þessu heilsuátök að líkami þinn sé ómögulegur og þar að leiðandi brjóta niður líkamsímynd fólks. Það er allt gott við að vera í kjörþyngd en þessar aðferðir sem maður heyrir mest um í umræðunni eru ekki vænlegar til árangurs og ala á óánægju sem veldur miklum kvíða og streitu.“
Mest lesið „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Fleiri fréttir Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi Sjá meira