„Öll aðlögun að mat verður að byrja við eldhúsborðið heima“ Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 6. janúar 2015 13:42 Jóhannes Már Gunnarsson, yfirmatreiðslumeistari mötuneytis leik-og grunnskóla á Seltjarnarnesi. „
Við hugsum bara fyrst og fremst vel um það hvað við eldum,“ segir Jóhannes Már Gunnarsson, yfirmatreiðslumeistari mötuneytis leik-og grunnskóla á Seltjarnarnesi, en mötuneytið kemur vel út í nýlegri úttekt sem matvæla-og næringarfræðingur gerði á því. Úttektin stóð yfir frá því í byrjun yfirstandandi skólaárs og til loka nóvember. Í niðurstöðu úttektarinnar segir meðal annars„að nánast alltaf er farið eftir opinberum ráðleggingum hvað varðar hráefnisval og matreiðslu. Matseðillinn er mjög vel samsettur með tilliti til leiðbeininga Embættis landlæknis.“ Aðspurður segir Jóhannes alltaf hafa í huga viðmið Landlæknisembættisins, líkt og að hann telji að öll mötuneyti geri, en hann hlustar einnig eftir því hvað börnin vilja. „Það skiptir auðvitað höfuðmáli að hlusta á það sem viðskiptavinirnir, börnin sjálf, vilja. Ég er til dæmis hérna í afgreiðslunni hjá 6-12 ára krökkunum alla dagana og þau vita alveg nákvæmlega hvað þau vilja og láta mann heyra það,“ segir Jóhannes léttur í bragði.Og þú ert alveg óhræddur við að breyta til? „Já, algjörlega. Ég vil auðvitað að börnin fari södd héðan og ef þeim finnst eitthvað vont þá sleppa þau því einfaldlega að borða. Það er ekki gott. Svo erum við líka með nemendalýðræði hérna þar sem börnin fá að velja matinn tvisvar sinnum í mánuði. Hver árgangur fær einn mánuð og pizzan er vinsælust hjá öllum en það þýðir þó ekki að það sé pizza tvisvar í mánuði.“ Jóhannes segir að pizza sé í mesta lagi tvisvar á ári, börnin séu meðvituð um það og velja sér aðra rétti, til að mynda hamborgara, pítur og kakósúpu.Boðið er upp á ferskt grænmeti á hverjum degi í leik-og grunnskólum Seltjarnarness.Vísir/GettyGrænmetisneysla hefur aukist í skólunum síðastliðið ár Með hverri máltíð er ferskt grænmeti á boðstólnum og ávextir. Í úttektinni kemur fram að grænmetisneysla í skólunum hafi aukist mjög síðastliðið ár, en Jóhannes útbýr ekki salat úr grænmetinu heldur er hver grænmetistegund sett sér í skál. Við það hafi neyslan aukist. „Það er samt alltaf eitthvað um það að börn þekki ekki grænmeti og vilji þess vegna ekki borða það. Þess vegna er ágætt að minna á að öll aðlögun að mat verður að byrja við eldhúsborðið heima. Hún getur ekki byrjað í mötuneytum skólanna.“ Jóhannes segist eiga í góðu samstarfi við þá birgja sem hann kaupir hráefni af en þeir útbúa og forvinna margt af því sem hann býður upp á matseðlinum. Ekki er alltaf hægt að elda allt frá grunni í eldhúsi mötuneytisins þar sem það sé gert til að elda fyrir 350 börn, en Jóhannes eldar fyrir um 700 nemendur á dag. Foreldrar borga 420 krónur fyrir máltíðina og dekkar það hráefniskostnað að sögn Jóhannesar, en Seltjarnarnesbær stendur straum af öðrum kostnaði við rekstur mötuneytisins.
Mest lesið Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Innlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Erlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Innlent Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Erlent Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Innlent Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Innlent Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Erlent Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Innlent Fleiri fréttir Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Vildi að betur hefði verið staðið að uppsögnum hótelstarfsfólks Bein útsending: Fjallað um mælanlegan árangur á ársfundi Landspítala Sjálfstæðisflokkur býður Gylfa Þór upp í dans í Mosó Funduðu án Valdimars og ætla að hittast aftur Meirihlutaviðræður tilkynntar í Mosfellsbæ í dag og Hildur hittir oddvita Nýr meirihluti í sameinuðu sveitarfélagi Sjá meira