Skemmdarverk unnin á húsi Fiskikóngsins Jakob Bjarnar skrifar 2. janúar 2015 15:34 Fiskikóngurinn er ekki kátur í dag, hann ætlar sér að finna skemmdarvargana og lesa þeim pistilinn.
Kristján Berg, eða sjálfur Fiskikóngurinn, segir árið 2015 ekki byrja vel. Þegar hann kom glaður og kátur til vinnu í morgun mætti honum ófögur sjón. „Húsið allt út spreyjað. Það hafa einhverjir fábjánar krotað á allt húsið, glugga fyrirtækisins, bílana og skilti. Hvað gengur fólki eiginlega til sem haga sér svona? Þetta er mörg hundruð þúsund króna tjón.Ég ætla mér að finna þessa einstaklinga, eða einstakling, og heiti 100.000 króna peningaverðlaun fyrir þann sem getur bent mér á þann sem gerði þetta.“ Fiskikóngurinn segir þetta algjört áfall. Hann hafi verið búinn að gera hús fiskibúðar sinnar fínt og flott, nýbúið að mála og skreyta í tilefni jóla, vinna í því baki í brotnu og svo kemur hann að þessu svona. „Nýtt ár, allir happý, menn búnir að sprengja, fá sér gott að borða og svo er þetta það sem mætir manni! Einhver asni spreyjar og spreyjar. Það hefur þurft heilan helling af brúsum í þetta og þeir kosta sitt. Þetta hlýtur að vera einhver veikur einstaklingur.“ Fiskikóngurinn veit ekki hvort hann á að vera svekktur eða reiður. „Ég er með myndavél. Ég ætla bara að finna þessa gaura og lesa þeim pistilinn. Það er ekkert flóknara en það. Jú, svo ætla ég að kæra þá. Láta þá finna til tevatnsins. Svona gerir maður ekki. Maður á ekkert að láta þetta líðast,“ segir Fiskikóngurinn sem veit ekki til þess að hann eigi sökótt við nokkurn mann. „Ekki svo ég viti. Ekki nema skatan hafi ekki verið nógu kæst. En, ég efast nú um það,“ segir Fiskikóngurinn sem reynir af veikum mætti að slá á létta strengi -- en, honum er ekki skemmt. Það er á hreinu.
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent Fleiri fréttir Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Sjá meira