Innlent

Skemmdarverk unnin á húsi Fiskikóngsins

Jakob Bjarnar skrifar
Fiskikóngurinn er ekki kátur í dag, hann ætlar sér að finna skemmdarvargana og lesa þeim pistilinn.
Fiskikóngurinn er ekki kátur í dag, hann ætlar sér að finna skemmdarvargana og lesa þeim pistilinn.
Kristján Berg, eða sjálfur Fiskikóngurinn, segir árið 2015 ekki byrja vel. Þegar hann kom glaður og kátur til vinnu í morgun mætti honum ófögur sjón.

„Húsið allt út spreyjað. Það hafa einhverjir fábjánar krotað á allt húsið, glugga fyrirtækisins, bílana og skilti. Hvað gengur fólki eiginlega til sem haga sér svona? Þetta er mörg hundruð þúsund króna tjón.Ég ætla mér að finna þessa einstaklinga, eða einstakling, og heiti 100.000 króna peningaverðlaun fyrir þann sem getur bent mér á þann sem gerði þetta.“

Fiskikóngurinn segir þetta algjört áfall. Hann hafi verið búinn að gera hús fiskibúðar sinnar fínt og flott, nýbúið að mála og skreyta í tilefni jóla, vinna í því baki í brotnu og svo kemur hann að þessu svona.

„Nýtt ár, allir happý, menn búnir að sprengja, fá sér gott að borða og svo er þetta það sem mætir manni! Einhver asni spreyjar og spreyjar. Það hefur þurft heilan helling af brúsum í þetta og þeir kosta sitt. Þetta hlýtur að vera einhver veikur einstaklingur.“

Fiskikóngurinn veit ekki hvort hann á að vera svekktur eða reiður. „Ég er með myndavél. Ég ætla bara að finna þessa gaura og lesa þeim pistilinn. Það er ekkert flóknara en það. Jú, svo ætla ég að kæra þá. Láta þá finna til tevatnsins. Svona gerir maður ekki. Maður á ekkert að láta þetta líðast,“ segir Fiskikóngurinn sem veit ekki til þess að hann eigi sökótt við nokkurn mann. „Ekki svo ég viti. Ekki nema skatan hafi ekki verið nógu kæst. En, ég efast nú um það,“ segir Fiskikóngurinn sem reynir af veikum mætti að slá á létta strengi -- en, honum er ekki skemmt. Það er á hreinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×