Rannsaka stórauknar líkur á banvænu krabbameini á jarðhitasvæðum Kjartan Hreinn Njálsson skrifar 5. janúar 2015 18:59 Búseta þýðisins er á Suðurlandsundirlendinu og á norðausturlandi á jarðhitasvæðum. VÍSIR/VILHELM
Fimmtíu og þrjú prósent meiri líkur eru á að einstaklingar á jarðhitasvæðum látist úr brjóstakrabbameini. Þetta kemur fram í rannsóknarniðurstöðum doktorsnema í lýðheilsuvísindum þar sem tíðni lífshættulegra krabbameina er rannsökuð á jarðhitasvæðum. Rannsóknin er hluti af doktorsverkefni Aðalbjargar Kristbjörnsdóttur í lýðheilsuvísindum við Háskóla Íslands en hún fylgir tveimur rannsóknum hennar á heilsufari fólks sem býr á jarðhitasvæðum. Rannsóknirnar tvær sýndu fram á stóraukna hættu á krabbameini meðal fólks á þessum svæðum, þar á meðal brjósta-, eitla- og blöðruhálskrabbamein.Aðalbjörg Kristbjörnsdóttir, doktorsnemi og lýðheilsufræðingur.VÍSIR/AÐALBJÖRG KRISTBJÖRNSDÓTTIRNý ferilrannsókn Aðalbjargar einblínir á lífshættuleg krabbamein. Þar rýnir hún í dánarmein fólks yfir tuttugu og átta ára tímabil. Þýðið er þrjú sveitarfélög, Selfoss, Hveragerði, Húsavík, og sex minni sveitir (eða Reykjahreppur, Skútustaðahreppur, Laugardalshreppur, Biskupstungnahreppur, Hrunamannahreppur og Skeiðahreppur.) Búseta þýðisins er á Suðurlandsundirlendinu og á norðausturlandi á jarðhitasvæðum. Notaðir voru samanburðar hópar á köldum og volgum svæðum. Útsett svæði úr fyrri rannsóknum Aðalbjargar voru notuð og borin saman við köld svæði. Þetta eru niðurstöðurnar: 53% prósent meiri líkur eru á að deyja úr brjóstakrabbameini. Líkurnar eru 74% prósent meiri á að deyja vegna krabbameins í blöðruhálsi. 78% prósent líkur eru á að deyja úr nýrnakrabbameini. Það sem meira er þá er tvöföld hætta á að deyja úr illkynja eitlafrumukrabbameini, líkur á að deyja vegna inflúensu er þrefaldar og fjörtíu og níu prósent auknar líkur eru að deyja vegna sjálfsvíga.Hættuhlutfallið. Þetta eru niðurstöður rannsóknarinnar.VÍSIR„Ég tel að það sé ekkert að óttast á þessum svæðum. Þetta eru vísbendingar sem við erum að sjá. Við erum ekkert farin að sjá neitt um hvað er að valda þessu eða hver orsökin eru. Það breytir þó ekki þeirri staðreynd að það er hækkuð tíðni krabbameina og það þarf bara að skoða betur. Loftmengun á eldfjalla- og jarðhitasvæðum er hnattrænt vandamál og hefur áhrif á milljónir einstaklinga. Hér á Íslandi búa tugþúsundir á slíkum háhitasvæðum sem þessum þar sem útblásturinn er blanda af koltvísýringi, vetnissúlfíði, brennisteinsdíoxíð og vetni.Sp. blm. Þetta eru ekki mörg tilfelli. Getur verið að það skekki myndina? Er tölfræðin traust?„Allar þessar niðurstöður sem hafa verið settar fram í rannsóknunum, niðurstöður þeirra eru tölfræðilega marktækar. Við gerum ráð fyrir ákveðnum þáttum og leiðrétta fyrir þeim eins og aldri, kyni og menntunarstigi. Síðan tökum við einnig inn sem leiðréttandi þátt í hvernig húsnæði fólk býr og einnig hlutfall reykinga á svæðunum. Þetta virðist ekki hafa nein áhrif. Þetta er ekki að koma í veg fyrir að niðurstöðurnar eru tölfræðilega marktækar.“Þetta eru svæðin sem voru tekin fyrir í rannsókn Aðalbjargar.VÍSIRJafnframt hafa innlendar rannsóknir sýnt fram á að hættuleg efni á borð við arsenik, kvikasilfur og radon er að finna í vatni frá háhitasvæðum, þó í litlu magni en af mismunandi styrk. Árum saman hefur háhitavatn verið tekið beint inn á heimili landsins og notað til kyndingar, uppvasks, þvotta og fleira „Það kemur í ljós að þetta eru mjög aggressív krabbamein,“ segir Aðalbjörg. „Og þessi krabbamein virðast vera mjög alvarlega þarna á þessum svæðum og fólk er að deyja úr þessum krabbameinum. „Við munum halda áfram með þessar rannsóknir og reynum að finna út hvað er á þessum svæðum sem mögulega eykur svona tíðni krabbameina.
Mest lesið Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Erlent Fleiri fréttir Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Sjá meira