„Yfirþyrmandi stórvirki að telja upp mannkosti Eggerts Þórs“ Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 5. janúar 2015 09:59 Eggert Þór skilur eftir sig móður, eiginkonu, tvo syni, tengdadóttur og sonardóttur. Vísir/Vilhelm
Stofnaður verður minningarsjóður við Háskóla Íslands um Eggert Þór Bernharðsson, sagnfræðing og rithöfund, sem lést fyrir aldur fram á gamlársdag. Þórunn Erla Valdimarsdóttir, eiginkona Eggerts Þórs, greinir frá þessu á Facebook-síðu sinni þar sem fram kemur að sjóðurinn sé ekki til helgimyndar heldur til að styrkja hugsjónir Eggerts. Það sem brenni nú sé að styrkja lausakennara á skítalaunum sem þurfa að halda Hagnýtri menningarmiðlun gangandi án Eggerts. Eggert Þór gaf út bókina Sveitin í sálinni fyrir jólin. Hann hóf kennslu í sagnfræði við Háskóla Íslands árið 1987 og kenndi þar til ársins 2006. Þá kom hann á fót námi í hagnýtri menningarmiðlun við Háskóla Íslands þar sem hann var dósent og svo prófessor frá árinu 2009. „Í patríarkíinu eins og í biblíunni og skoska clankerfinu hverfa konur úr fjölskyldu sinni til að verða hluti fjölskyldu eiginmanns síns. Ég varð hins vegar um tímabil hluti af fjölskyldu sem Eggert var líka hluti af og við vorum svilar í eitthvað um þrjú ár. Við bjuggum undir sama þaki milli 1983 og 1984,“ segir Elías Halldór Ágústsson í færslu um Eggert Þór. „Að telja upp mannkosti hans virðist eitthvað svo yfirþyrmandi stórvirki að manni hrýs hugur við að hefja það verk,“ bætir Elías Halldór við. „Fyrir utan að vera framúrskarandi fræðimaður á sviði sagnfræði var hann líka einstakur hæfileikamaður í því að sameina krafta ólíkra fræðisviða sem stafaði sennilega af því hversu mikið aðdráttarafl hann hafði á hæfileikafólk hvar sem það fyrirfannst í Háskóla Íslands.“ Post by Elías Halldór Ágústsson.
Mest lesið Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Erlent Fleiri fréttir Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Sjá meira