Bæjaryfirvöld töldu gögn innihalda símtöl farsíma sveinn arnarsson skrifar 27. febrúar 2015 07:00 Guðlaug Kristjánsdóttir, forseti bæjarstjórnar Hafnarfjarðar.
Rósa Guðbjartsdóttir, formaður bæjarráðs Hafnarfjarðar, segir fulltrúa minnihlutans í bæjarstjórn hafa farið of geyst með að kæra skoðun bæjarins á símtalaskrám. Segir í tilkynningu frá Vodafone að þau gögn sem bárust Hafnarfjarðarbæ hafi verið viðaminni en talið var í fyrstu og einungis símanúmer sem bærinn greiðir að fullu hafi verið skoðuð. Þannig hafi farsímar bæjarfulltrúa ekki verið skoðaðir. „Eftir að í ljós hefur komið að Vodafone sendi einungis gögn yfir þá síma sem Hafnarfjarðarbær greiðir að fullu, er ljóst að minnihlutinn í bæjarráði hefur farið of geyst í að kæra málið til Persónuverndar. Fulltrúar minnihlutans hafa ekki getað setið á sér og beðið eftir formlegum útskýringum og upplýsingum tengdum málinu frá embættismönnum bæjarins,“ segir Rósa. Guðlaug Kristjánsdóttir, oddviti Bjartrar framtíðar, segist fagna því að nú séu komnar fram staðreyndir í málinu og segir umfjöllun um það hafa einkennst af ítrekuðum getgátum og rangfærslum. „Ég lít mjög alvarlegum augum þær fullyrðingar sem settar voru fram berum orðum í Fréttablaðinu þann átjánda febrúar og síðan í hádegisfréttum Bylgjunnar sama dag, að bæjarfulltrúar meirihlutans hefðu rannsakað síma minnihlutans. Yfirlýsing Vodafone staðfestir nú að sú langsótta og ærumeiðandi túlkun er röng.“„Bæjó liggur á bakinu á mér“ Hafnarfjarðarbær sendi í þrígang fyrirspurn til Vodafone. Fyrsta beiðni bæjarins, dagsett á Þorláksmessu, sýnir að beðið er um upplýsingar um úthringingar úr símstöð bæjarins. Í því tölvubréfi er ekki beðið um gögn um notkun farsímanúmera bæjarins. Guðmundur Ragnar Ólafsson, innkaupastjóri bæjarins, ítrekar beiðnina þann 30. desember í bréfi til starfsmanns Vodafone. „Sæll Steini minn, veistu eitthvað um stöðuna á númerabirtingunni? Bæjó liggur á bakinu á mér.“ Enn hafði ekkert svar borist bænum þann 12. janúar þegar Guðmundur Ragnar ítrekar beiðni bæjarins aftur. Í því bréfi er beðið um gögn sem sýni hvort einhver sími Hafnarfjarðarbæjar hafi hringt í númer hafnarstarfsmannsins Guðna Einarssonar.Oddvitar skoðuðu ekki gögn Þrír bæjarfulltrúar minnihlutans í Hafnarfirði hafa kvartað til Persónuverndar vegna þess að bærinn hafi skoðað símtalaskrár starfsmanna sinna án samþykkis þeirra. Rósa ítrekar að fulltrúar meirihlutans komu hvergi nærri skoðuninni. „Málið var kært án tafar og blásið upp í fjölmiðlum. Það er dapurlegt að við fulltrúar meirihlutans, sem hvergi komum nálægt þessu, höfum verið vænd af fulltrúum minnihlutans um að hnýsast í símtalaskrá bæjarfulltrúa. Þetta eru mjög alvarlegar ásakanir og vega að æru fólks. Áskil ég mér rétt til að skoða þann þátt málsins frekar.“ Fréttablaðið greindi fyrst frá því þann 18. febrúar að Hafnarfjarðarbær hafi skoðað símtalaskrár kjörinna fulltrúa. Bæjarfulltrúar eru með símanúmer frá bænum og taldi bærinn sig hafa fengið upplýsingar um þau símanúmer. Komið hefur í ljós að bærinn var ekki með þær upplýsingar sem hann taldi sig vera með.
Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Innlent Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Innlent Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Innlent „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Innlent Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent Meirihlutinn fallinn samkvæmt nýrri könnun Innlent Fleiri fréttir Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Hefur áhrif að vera háður umönnunaraðilum „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Meirihlutinn fallinn samkvæmt nýrri könnun „Aðild að Evrópusambandinu myndi skapa stöðugleika“ Olíuverð, starfslok og vinsældir hristibretta Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Átta vilja tvö laus sæti í Landsrétti Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Kynna stafrænt Reykjavíkurkort Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja „Það er ekki hægt að plata þjóðina inn í Evrópusambandið“ Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Bak við lás og slá grunaður um risastórt kókaínsmygl Sjávarútvegsstjóri ESB í heimsókn og fíkniefni í Norrænu Frestur til að svara fyrirspurn ESA löngu útrunninn Bein útsending: Fundur atvinnuvegaráðherra og sjávarútvegsstjóra ESB Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Máttu vísa mæðgunum úr félaginu eftir allt saman Flestir vilja leiguþak Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á dreng vegna dyraats „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu Sjá meira