Ríkisstjórnin hætt við lyklafrumvarpið Heimir Már Pétursson skrifar 27. febrúar 2015 12:58
Ríkisstjórnin hefur hætt við að leggja fram svo kallað lyklafrumvarp en innanríkisráðherra greindi frá því í morgun að enginn undirbúningur væri í gangi fyrir slíkt frumvarp. Þingflokksformaður Samfylkingarinnar segir stjórnarflokkana með þessu vera að svíkja kosningaloforð sem þeir gáfu báðir fyrir kosningar. Helgi Hjörvar þingflokksformaður Samfylkingarinnar spurði Ólöfu Nordal innanríkisráðherra í fyrirspurnartíma á Alþingi í morgun, hvenær mætti búast við að hún leggði fram svo kallað lyklafrumvarp. En bæði Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur hefðu lofað slíku frumvarpi í kosningabaráttunni, þannig að ofurveðsett heimili gætu losnað undan húsnæðisskuldum með því að skila lyklunum af heimilum sínum. Helgi sagði Ólöfu sjálfa hafa lofað frumvarpi sem þessu á flokksráðsfundi Sjálfstæðisflokksins í mars 2012. „Og margt fólk sem á í miklum erfiðleikum bindur vonir við að það verði gert. Ég kalla eftir því að hæstvirtur ráðherra svari því einfaldlega núna á miðju kjörtímabili hvort það eigi að efna loforðið eða ekki,“ spurði Helgi innanríkisráðherrann. „Það er alveg rétt og það þarf ekki að hafa mörg orð um það að lyklaleiðin var ein þeirra leiða sem við Sjálfstæðismenn töluðum um á síðasta kjörtímabili og var líka hluti af þeim skuldapælingum sem ég ræddi um á flokksráðsfundi árið 2012,“ sagði Ólöf. Í millitíðinni hefði verðið gengið til kosninga og eftir þær hafi niðurstaðan orðið sú að fara hina svo kölluðu skuldaleiðréttingarleið sem stjórnarflokkarnir hefðu unið eftir. „Þess vegna get ég sagt við háttvirtan þingmann að á þessu stigi er ekkert frumvarp í smíðum í innanríkisráðuneytinu sem snýr að lyklamálum,“ sagði innanríkisráðherra. „Þetta voru nú meira en pælingar hæstvirtur innanríkisráðherra. Ólöf Nordal varaformaður Sjálfstæðisflokksins sagði á flokksráðsfundi að Sjálfstæðisflokkurinn myndi leggja fram í þinginu lyklafrumvarp. Og báðir ríkisstjórnarflokkarnir lofuðu þessu fyrir kosningar. Hverju stendur þá á ef þeir voru sammála um þetta,“ spurði Helgi Hjörvar en fékk ekkert efnislegt svar við þeirri spurningu.
Mest lesið Arnar Þór vantaði sex meðmæli upp á Innlent Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Innlent Karlremba sé komin í tísku Innlent Mennirnir tóku annan starfsmannanna hálstaki Innlent Voru með stæla og neituðu að fara upp úr fyrr en löggan mætti Innlent Lögregla kölluð út vegna ungmenna til leiðinda í sundlaug Innlent Gefur lítið fyrir útskýringar fréttastjórans Innlent Helga lenti einnig í vandræðum Innlent Líklegt að það styttist í brotmörk Innlent Minni lyfjanotkun og meiri vellíðan í sérstöku heilabilunarþorpi Innlent Fleiri fréttir Vill að fréttastofa RÚV biðji Maríu Sigrúnu afsökunar Lögreglan lofar góðu vegaeftirliti á Suðurlandi í sumar Landskjörsstjórn tilkynnir á morgun hvaða listar eru gildir Mögulega að hægjast á landrisi í Svartsengi Karlremba sé komin í tísku Voru með stæla og neituðu að fara upp úr fyrr en löggan mætti Arnar Þór vantaði sex meðmæli upp á Sprengisandur: Peningastefna, ESB og lagareldi Lögregla kölluð út vegna ungmenna til leiðinda í sundlaug Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Minni lyfjanotkun og meiri vellíðan í sérstöku heilabilunarþorpi Mennirnir tóku annan starfsmannanna hálstaki Líklegt að það styttist í brotmörk Helga lenti einnig í vandræðum Eiríkur og Ástþór fá frest til að bæta við undirskriftum Hættuástand í Grindavík og æsispennandi forsetakosningar Gefur lítið fyrir útskýringar fréttastjórans Handteknir á hlaupum eftir vopnað rán í Reykjavíkurapóteki Björk varar við frumvarpi um sjókvíeldi Uppgangur Höllu Hrundar fari fyrir brjóstið á „valdastéttinni“ Mikil gleði þegar Bergur komst í mark Segir engin annarleg sjónarmið að baki ákvörðun RÚV Hraun mjakast yfir varnargarð Ný gossprunga geti opnast fyrirvaralaust á næstunni Allt að gerast í Vík í Mýrdal um helgina Stór gossprunga gæti opnast fyrirvaralaust Fylgi Höllu Hrundar ekki fast í hendi Tíu kílómetrar eftir af hundrað: Gangan miklu erfiðari en hann óraði fyrir 800 milljóna króna hreinsistöð byggð á Selfossi Sveddi sagður með tengsl við ítölsku mafíuna Sjá meira