Fyrsta leik kvöldsins er lokið í Pepsi-deild kvenna. Þór/KA og Fylkir gerðu 1-1 jafntefli á Akureyri.
Sandra María Jessen kom heimamönnum yfir í lok fyrri hálfleiks en Berglind Björg Þorvaldsdóttir skoraði dýrmætt jöfnunarmark Fylkis á 89. mínútu leiksins.
Stigið var kærkomið fyrir Fylki sem hafði tapað þremur deildarleikjum í röð. Þór/KA er í öðru sæti með tíu stig en Fylkir í því sjöunda með fjögur.
