Vonleysi á leigumarkaði Þóra Kristín Ásgeirsdóttir skrifar 31. janúar 2015 19:31
Soffía Guðnýjardóttir, tæplega fimmtug kona sem hefur leitað að húsnæði í sjö mánuði, segist óska þess að það væri til hjólhýsahverfi í Reykjavík, þar sem hún gæti búið út af fyrir sig. Hún hefur reynt að leita að íbúð í Kópavogi, þar sem hún á rétt á sérstökum húsaleigubótum, en ekki haft erindi sem erfiði. Hún segir engan vilja leigja öryrkja og hvað þá öryrkja sem hafi misst íbúðina sína á uppboð eins og hún. Hlutskipti margra höfuðborgarbúa sem nú um stundir, þurfa að treysta á leigumarkaðinn, er að búa í kössum og fá að halda til hjá vinum og ættingjum uppá náð og miskunn. „Ég er með góða vinnu, háskólamenntun og móðir fjögurra ára drengs,“ segir Sigrún Thordarson, einstæð móðir sem starfar sem leikskólakennari. Hún býr inni á vinum og segist ekki hafa efni á húsnæði við núverandi aðstæður enda ástandið kaótískt og leigan svimandi há. Hún segist hafa verið lengi á leigumarkaði og oft hafa flutt en aldrei fyrr verið óörugg um hvort hún fái yfirhöfuð þak yfir höfuðið. Sigríður Ingibjörg Ingadóttir formaður velferðarnefndar Alþingis telur að orð og athafnir fari ekki saman þegar kemur að ástandinu á leigumarkaði: „Það þarf að byggja upp almennan leigumarkað, þar sem fólk getur búið um lengri tíma við öryggi og til þess þarf stofnstyrki frá ríkinu og nýtt húsnæðisbótakerfi, þar sem eigendur og leigjendur eru jafnsettir. Það er búið að setja yfir áttatíu milljarða millifærslu til heimila sem eiga sína eign, á meðan sitja leigjendur óbættir hjá garði.“ Hún segir ekkert sjáanlegt um að það eigi að breyta þessu. Þingið hafi ekki fengið nein frumvörp og þess sjái ekki stað í fjárlagafrumvarpinu.
Mest lesið Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Fleiri fréttir Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Sjá meira