Meðalheimili með milljón í yfirdrátt kolbeinn óttarsson proppé skrifar 19. febrúar 2015 09:15 Margur hefur gengið upp að hnjám í baráttu sinni við að lækka skuldirnar. Mikill akkur er í því að lækka yfirdráttarheimildir, enda bera þau lán háa vexti. fréttablaðið/daníel
Heildarupphæð yfirdráttarlána landsmanna árið 2014 var 85,9 milljarðar króna. Það þýðir að að meðaltali skuldar hvert heimili um 1,1 milljón króna í yfirdráttarlán. Miðað við hefðbundna vexti yfirdráttarlána, 12,5 prósent, greiða landsmenn árlega tæplega 11 milljarða króna í vexti af yfirdráttarlánum. Yfirdráttarlánin hafa heldur verið að hækka undanfarin ár, en hafa verið á milli 80 og 90 milljarðar síðan í desember 2011. Sé fjölda heimila deilt í upphæðina, til að finna út meðaltalið, kemur í ljós að árið 2010 var meðalyfirdráttarheimild hvers heimilis um 937 þúsund. „Við höfum fylgst með þessum tölum og ekki lesið úr þeim neina afgerandi þróun síðustu árin. Þær virðast sitja á svipuðum stað og því höfum við ekki rýnt þær sérstaklega,“ segir Jón Bjarki Bentsson, hjá greiningardeild Íslandsbanka.Svanborg SigmarsdóttirSvanborg Sigmarsdóttir, upplýsingafulltrúi umboðsmanns skuldara, segir rétt að vera vakandi yfir þessum tölum. „Það er ofboðslega dýrt að vera með yfirdráttarheimild. Að yfirdráttarheimild sé að jafnaði í kringum milljón á heimili, er mjög dýrt. Það er spurning hvort fólk getur borgað niður yfirdráttarheimildina, eða hvort það er ekki með nægilegar tekjur til framfærslu.“ Umboðsmaður skuldara hefur bent fólki á að ef sóst er eftir því að borga yfirdráttinn niður bjóði flestir bankar betri kjör en á hefðbundnum yfirdráttarheimildum. „Fólk getur þannig lækkað vaxtakostnaðinn töluvert með því að semja um niðurgreiðslu á yfirdrætti á ákveðnum tímapunkti.“ Kortavelta hefur heldur aukist undanfarin ár, sem bendir til þess að einkaneysla heimilanna sé að aukast.„Kreditkortanotkun gefur ágætis vísbendingu um þróun einkaneyslu heimilanna og þar hefur verið myndarlegur vöxtur, sérstaklega í erlendum færslum,“ segir Jón Bjarki. Svanborg segir að velta debetkorta sé nokkuð stöðug, um 120 til 140 þúsund á mánuði. Hins vegar komi toppur í desember og í sumarfrísmánuðunum sem rími við hækkun yfirdráttarheimildar á þeim tíma. „Þetta sýnir okkur að fólk er ekki almennt að undirbúa sig undir stór útgjöld, eins og jól og sumarfrí.“
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Innlent Uppsagnir hjá Klettabæ Innlent Fleiri fréttir Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Sjá meira