Fundur tveggja íbúða húsfélags dæmdur ólöglegur Samúel Karl Ólason skrifar 19. febrúar 2015 19:06 Hæstirétturvísaði málinu frá héraðsdómi og felldi niður málskostnað bæði í héraði og Hæstarétti. Vísir/GVA
Hæstiréttur hefur fellt niður dóm Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem hjónum var gert að greiða húsfélagi sínu tæplega eina og hálfa milljón króna. Kostnaðurinn var til kominn vegna framkvæmda við fjöleignarhús í Reykjavík, en þau sögðu boðun á fund húsfélagsins hafa verið ólöglega. Málið snýst um þriggja hæða fjöleignarhús í Reykjavík, sem er í eigu tveggja hjóna. Árið 2007 komu eigendur sér saman um að reisa svalir á báðum hæðum hússins og pall við kjallara þess. Síðar á því ári fluttu önnur hjónin til Kína þar sem þau bjuggu til 2011. Þann 20. júlí 2010 boðuðu hjónin á Íslandi, sem eiga efri hæð hússins, til húsfundar þar sem taka átti fyrir „Verkáætlun vegna áður samþykktra framkvæmda.“ Hjónin í Kína, sem eiga miðhæð og kjallara, mættu ekki á fundinn. Húsfélagið sendi bréf á neðri hæðina og á tölvupósta hjónanna um að á húsfundinum hefðu verið teknar bindandi ákvarðanir um framkvæmdirnar. Kæmu ekki fram athugasemdir innan tíu daga yrði ráðist í verkið. Hjónin í Kína segja þó að þeim hafi aldrei borist fundarboðið og því hefði boðunin ekki verið lögleg og þau ekki bundin af þeim ákvörðunum sem teknar voru á fundinum. Framkvæmdir hófust í lok janúar eða byrjun febrúar 2011, en hjónin fluttu aftur til Íslands í apríl það ár. Héraðsdómur Reykjavíkur gerði hjónunum í Kína að greiða húsfélaginu 1.348.667 krónur ásamt dráttarvöxtum og 350.000 krónur í málskostnað. Hæstiréttur segir engin gögn sína fram á að þau hafi í raun fengið boð á húsfundinn. Rétturinn vísaði því málinu frá héraðsdómi og felldi niður málskostnað bæði í héraði og Hæstarétti.Dóm Hæstaréttar í heild sinni má sjá hér.
Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu Innlent Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Erlent Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Erlent CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Innlent „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Innlent Fleiri fréttir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Æfir kennarar og varað við verðstýringu Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Margir sátu hjá þegar launin voru hækkuð Halla Bergþóra nýr ríkislögreglustjóri „Nú hef ég auðvitað ekkert á móti fólki frá Nígeríu“ Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Rannsóknin á lokametrunum Fjórir landsréttardómarar vilja taka skrefið í Hæstarétt Forsetar Íslands og Slóveníu ræða leiðtogahlutverk í breyttum heimi Segir forsætisráðuneytið misnotað í þágu sveitarstjórnarkosninga Sjálfsmark með „sjúklega samfylkingarlegu“ kjötvörubanni Framkoman laði ekki lækna að Landspítalanum Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Sjá meira