Ég veit nánast allt um þetta lið Tómas Þór Þórðarson skrifar 2. júlí 2015 07:00 Milos Milojevic, annar þjálfara Víkings, fylgist hér vel með sínum mönnum á æfingu liðsins í gær. Vísir/Andri Marinó „
Ágætt, Víkingar“ og „Víkingar stóðu sig en Rússarnir of sterkir“. Þetta voru fyrirsagnir dagblaðanna Tímans og DV eftir 1-0 tap Víkings gegn Rússlandsmeisturum CSKA Moskvu í fyrri leik liðanna í fyrstu umferð Evrópukeppni meistaraliða 16. september 1992. Víkingar unnu árið áður fimmta Íslandsmeistaratitilinn í sögu félagsins og spiluðu þarna sinn níunda Evrópuleik. Leikurinn í Mosvku tveimur vikum síðar, sem tapaðist, 4-2, var síðasti Evrópuleikur liðsins. Nú, 23 árum síðar, er Fossvogsfélagið aftur komið á Evrópusviðið. Víkingar taka á móti FC Koper frá Slóveníu í fyrstu umferð forkeppni Evrópudeildarinnar í Víkinni í kvöld. Þetta er ellefti Evrópuleikurinn í sögu félagsins en sá fyrsti sem liðið spilar á sínum heimavelli í Fossvoginum.Fengu góða hjálp Leiðin hefur verið löng og ströng. Ári eftir Evrópuævintýrið féll Víkingur og var félagið lengi að ná sér á strik. Það er í raun rétt svo að byrja núna. Árin eftir fallið voru erfið og sneru Víkingar ekki aftur á meðal þeirra bestu fyrr en 1999. Liðið féll strax aftur líkt og það gerði 2004. Það hélt sér uppi eina leiktíð 2006 en féll á ný 2007 og aftur 2011. Aðeins sex ár eru síðan Víkingur hafnaði í tíunda sæti 1. deildar árið 2009. Eftir ótrúlegan endasprett í 1. deildinni 2013 komust Víkingar aftur upp á meðal þeirra bestu og þrátt fyrir ömurlegan endasprett í Pepsi-deildinni í fyrra náði liðið í Evrópusæti. Það var eins og liðin í landinu vildu að Víkingar spiluðu Evrópuleik á ný, í það minnsta fengu þeir næga hjálp.Rolf Toft lætur Sigurð Hrannar Björnsson verja frá sér á æfingu í gærkvöldi.vísir/andri marinóStórkostleg upplifun „Það er frábært að Víkingur sé í þessari stöðu aftur. Félagið er bara að snúast við út af þessu. Það eru þessir leikir sem gefa þessu gildi,“ segir Hörður Theódórsson, fyrrverandi leikmaður Víkings. Hörður varð Íslandsmeistari með Víkingi 1991 og spilaði báða Evrópuleikina gegn CSKA ári síðar. „Það var alveg stórkostleg upplifun. Sérstaklega að spila á 100.000 manna velli ytra. Það voru reyndar bara 15.000 manns á vellinum þannig hann virkaði tómur,“ segir hann og hlær. Hörður spilaði aðeins þessa tvo Evrópuleiki og miðað við stöðu Víkingsliðsins í deildinni í dag lítur ekki út fyrir að fleiri Evrópuleikir séu á dagskránni í bili. „Þetta er eitthvað sem lifir með manni alla ævi og klárlega það sem stendur upp úr ferlinum fyrir mann eins og mig sem spilaði allan ferilinn á Íslandi. Þetta gefur manni gríðarlega mikið,“ segir Hörður og bætir við: „Maður fattar ekki hversu stórt þetta er þegar maður er að spila. Svona eftir á er þetta það sem maður man eftir og sérstaklega að hafa spilað við svona stórt lið,“ segir Hörður Theódórsson.Milos Milojevic og Ólafur Þórðarson.Vísir/Andri MarinóJanni hjálpar til Milos Milojevic, annar þjálfari Víkinga, hefur eytt dag og nótt í að fá upplýsingar um Koper-liðið og myndbönd til að greina. Víkingar leituðu einnig til annars Íslandsmeistara frá 1991, Janez Zilnik, í leit að upplýsingum um liðið en hann er Slóveni sem kom að góðum notum. „Ég veit nánast allt um þetta lið,“ segir Milos við Fréttablaðið. „Eina sem ég veit ekki er hversu margir af nýju leikmönnunum munu spila. Það eru komnir fjórir nýir.“ Milos segir besta mann liðsins vera örvfætta miðjumanninn Goran Galesic og þá eru bosnískir miðverðir Koper mjög sterkir í loftinu. Þeir eru svo með Veigar Páls-týpu, eins og Milos orðar það, í fyrrverandi fyrirliða U21 árs landsliðs Slóvena.Varnarsinnaður mótherji „Þeirra hugmyndafræði er mjög varnarsinnuð og treyst er á skyndisóknir og föst leikatriði,“ segir Milos um liðið sem hafnaði í áttunda sæti slóvensku deildarinnar í fyrra en varð bikarmeistari. „Serbi sem spilaði þarna í fyrra og ég ræddi við sagði að það væri engin leikáætlun fram á við. Ef liðið nær ekki að verjast er bara vesen. Við eigum svona 50 prósenta séns á að komast áfram ef við eigum tvo góða daga. Það hjálpar samt ekki að spila bikarleik þarna á milli, en þeir eiga leik í slóvenska stórbikarnum um helgina þannig bæði lið eru á svipuðum stað,“ segir Milos.
Evrópudeild UEFA Fótbolti Íslenski boltinn Pepsi Max-deild karla Mest lesið Ólafur fékk rautt spjald eftir sjö sekúndur í endurkomunni Handbolti Óvænt hætt sem þjálfari af persónulegum ástæðum Handbolti „Þeir eru að fara í Evrópuleik bara til að halda klúbbnum á floti“ Fótbolti Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Enski boltinn Minnst 447 milljónir í boði fyrir Víkinga í kvöld Fótbolti Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Fótbolti Víkingar með bakið upp við vegg Fótbolti Íslenski hópurinn sem fer á Ólympíuleika ungmenna Sport Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ Handbolti Náði að plata Óskar Örn Sport Fleiri fréttir Snýr aftur til uppeldisfélagsins frítt „Þeir eru að fara í Evrópuleik bara til að halda klúbbnum á floti“ Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Minnst 447 milljónir í boði fyrir Víkinga í kvöld Sjáðu Breiðablik fara á kostum og valta yfir andstæðing sinn í Evrópu Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Víkingar með bakið upp við vegg Nicolas Jackson á leið til Aston Villa „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum „Við vorum allar alveg með þetta í dag“ Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Tómas Bent fékk rautt en Hearts fór áfram eftir vítakeppni Orri Steinn kom inn á en Mbappé skoraði þrennu Karólína og Cecilía byrjuðu báðar í tapi Arna, Fanney og Vålerenga með öruggan sigur Sjáðu tvö fyrstu Evrópumörk kvennaliðs FH í sögunni Uppgjörið: Apollon - FH 0-2 | Flottur sigur í sögulegum leik hjá Fimleikafélaginu Uppgjörið: Breiðablik - Csíkszereda 8-1 | Meiriháttar slátrun í Kópavoginum Dagný orðin sendiherra West Ham „Eigum að gera mikið betur í þessu og vitum það manna best“ UEFA hætt við sniðgöngu og evrópskar stelpur mega spila Raheem Sterling ákærður Liðsfélagi Alberts kominn í stríð við félagið Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Sjá meira