Már útskýrði endurreisnina fyrir Írum jón hákon halldórsson skrifar 7. maí 2015 09:30 Már Guðmundsson Vísir
Misskilnings hefur gætt varðandi framkvæmdina á neyðarlögunum, sagði Már Guðmundsson seðlabankastjóri í ræðu sinni sem hann hélt á ráðstefnu írskrar stofnunar um alþjóðleg og evrópsk mál. Á ráðstefnunni á Írlandi ræddi Már um fjármálakreppuna og eftirleik hennar hér á landi, einnig um það hvaða lærdóm mætti draga af reynslu Íslendinga. „Það hefur verið fullyrt að Íslendingar hafi látið bankakerfið hrynja, með að því er virðist ágætri niðurstöðu, og að önnur ríki hefðu átt að gera það sama. Staðreyndin er hins vegar sú að Íslendingar héldu innlenda hluta bankakerfisins gangandi og það með töluverðum tilkostnaði; að öðrum kosti hefði niðurstaðan verið skelfileg. Sumir hafa fullyrt að bankarnir hafi verið þjóðnýttir. Það voru þeir ekki. Hinir föllnu einkabankar eru enn einkafyrirtæki í slitameðferð og lúta lögum þar um. Ríkissjóður fjármagnaði að fullu einn af nýju bönkunum. Hinir tveir nýju bankarnir eru einkabankar sem eru að mestu í eigu gömlu bankanna. Því hefur líka verið haldið fram að Ísland hafi farið í greiðsluþrot og komist upp með það. Þvert á móti var greiðslugeta ríkisins varin og allar kröfur hafa verið greiddar á réttum tíma,“ segir Már. Þá hafi lánshæfismatsfyrirtækin Moody's og S&P haldið ríkissjóði í fjárfestingarflokki í lánshæfismati sínu. Íslenska ríkið hafi því getað sótt fjármagn á alþjóðamarkaði tvisvar eftir að kreppan skall á.
Mest lesið Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Innlent Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Innlent Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Innlent Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Erlent Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Innlent „Alskýjaður almyrkvi er líka mögnuð og merkileg upplifun“ Innlent Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Innlent Tólf hundruð ferðamenn fluttir í rútum á Snæfellsnes Innlent Blaðamenn og aðrir farþegar notaðir sem tálbeita? Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Almyrkvi á sólu Vona að skýin víki fyrir sólinni eins og þau gerðu í Texas Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Norðurljós, almyrkvi og stjörnuhrap allt sama daginn sé fallegur möguleiki „Alskýjaður almyrkvi er líka mögnuð og merkileg upplifun“ Loka Hvalfjarðargöngunum ef umferð verður of mikil Spennan magnast á almyrkvadegi Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Einn fluttur á sjúkrahús og eldurinn slökktur Mannfjöldinn á Vestfjörðum margfaldast vegna almyrkvans Nóg af bílastæðum á Breiðavík en ekki á Rauðasandi og Bjargtöngum Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Umferðarstýring gangi vel og ökumenn hlýði einstefnu Tólf hundruð ferðamenn fluttir í rútum á Snæfellsnes Vegfarendur gefi sér góðan tíma til ferðalaga í dag Tveir handteknir í tengslum við heimilisofbeldi Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Maðurinn fundinn Fjórfalt fleiri lögreglumenn vakta Vestfirði Skemmdir á nýrri vatnsleiðslu til Eyja Leita svara við aldargamalli ráðgátu sólarinnar Gætu þurft að skila skyndibitaumbúðum Gripinn með stolið kreditkort og handtekinn Hafa borið kennsl á hinn látna Einn um borð þegar eldur kviknaði í fiskibát Kveikt á götulýsingu í sólmyrkva á stofnbrautum Líkfundur við Austurbæjarskóla Hólmbert bjargaði manni úr bíl sem stóð í ljósum logum í Kóreu Sjá meira