Hvatningarverðlaun velferðarráðs afhent Atli Ísleifsson skrifar 7. maí 2015 23:21 Vinningshafar. Vísir/Reykjavíkurborg
Jónas Hallgrímur Jónasson og hælisleitendateymi Þjónustumiðstöðvar Miðborgar og Hlíða fengu afhent hvatningarverðlaun velferðarráðs Reykjavíkurborgar fyrr í dag. Jónas Hallgrímur Jónasson fékk hvatningarverðlaun velferðarráðs 2014 í flokki einstaklinga. „Jónas hefur starfað lengi að málefnum utangarðsfólks og nú síðast verið forstöðumaður eða verkefnastjóri Smáhýsanna. Jónas hefur með viðmóti sínu og viðhorfum veitt einstaklingum sem eru utangarðs ráðgjöf og stuðning sem er til eftirbreytni. Hann hefur verið öðrum góð fyrirmynd og hefur tekið að sér að þjálfa fjölda starfsmanna í málefnum utangarðsfólks. Jónas starfar af ástríðu og hefur skýra framtíðarsýn í málaflokknum. Hælisleitendateymi Þjónustumiðstöðvar Miðborgar og Hlíða fékk hvatningarverðlaunin í flokki hópa eða starfsstaða. Í rökstuðningi valnefndar kemur fram að aðdáunarvert sé að fylgjast með þeim starfsmönnum sem starfa við móttöku hælisleitenda fyrir hönd borgarinnar. Þeir hafi með góðum árangri þurft að setja sig inn í ólíkar aðstæður hælisleitenda og hafi þurft að vera lausnamiðaðir og sýna mikla útsjónarsemi til að koma til móts við þarfir hvers og eins. Þetta starfsfólk sýnir öryggi í aðstæðum sem oft eru erfiðar og á milli þess ríkir mikil samstaða þegar á reynir. Þjónustan byggist á jákvæðni, virðingu og alúð. Geðveikur fótbolti og fótboltaliðinu FC Sækó fékk hvatningarverðlaunin í flokki verkefna. Fótboltaverkefnið Geðveikur fótbolti og fótboltaliðið FC Sækó byrjaði í nóvember 2011 og er samstarfsverkefni velferðarsviðs Reykjavíkurborgar, geðdeildar Landspítalans og Hlutverkaseturs. Verkefnið felst í því að íbúum í búsetukjörnum fyrir geðfatlaða, notendum á geðsviði landspítalans og Hlutverkaseturs ásamt starfsfólki stendur til boða að æfa innanhúss fótbolta. Markmiðið er að efla heilsu og virkni notenda ásamt því að veita jákvæðan og uppbyggilegan félagslegan stuðning. Verkefnið fékk strax mjög góðar viðtökur og mættu 15-20 einstaklingar að jafnaði hvern einasta mánudag og eru enn að í dag. Það er skemmst frá því að segja að fótboltaliðið lagði land undir fót og fór til Skotlands og kynnti sér sams konar verkefni þar. Sjálfstraust og gleði þátttakenda hefur aukist og á næsta ári stefnir liðið á að fara til Notts County í Englandi og kynnast áhugaverðu boltaúrræði þar. Mikill hugur er í mönnum og ætla þeir að gera heimildamynd um ferðina. Markmiðið með hvatningarverðlaununum er að skapa hvetjandi vinnustaðamenningu og vekja athygli á gróskumiklu starfi í velferðarmálum Reykjavíkurborgar, auk þess að stuðla að aukinni nýbreytni og þróunarstarfi. Valnefndin er skipuð fulltrúum velferðarráðs, skrifstofu velferðarsviðs, Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar og BHM. Í valnefnd vegna verðlauna fyrir árið 2014 voru: Björk Vilhelmsdóttir, Áslaug Friðriksdóttir, Garðar Hilmarsson, Þórhildur Lilja Ólafsdóttir og Lóa Birna Birgisdóttir. Alls bárust nefndinni 24 tilnefningar sem er til marks um vel unnin störf á velferðarsviði Reykjavíkurborgar. Velferðarráð veitti í fyrsta sinn hvatningarverðlaun árið 2011 í því skyni að hvetja starfsmenn sviðsins og hafa þau verið veitt árlega síðan,“ segir í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.
Mest lesið Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Innlent Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Erlent Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Innlent Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Innlent Tólf hundruð ferðamenn fluttir í rútum á Snæfellsnes Innlent Blaðamenn og aðrir farþegar notaðir sem tálbeita? Erlent Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Innlent Umbúðirnar gallaðar og hakkið fer aftur í bakka Innlent Maðurinn fundinn Innlent Fleiri fréttir Spennan magnast á almyrkvadegi Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Einn fluttur á sjúkrahús og eldurinn slökktur Mannfjöldinn á Vestfjörðum margfaldast vegna almyrkvans Nóg af bílastæðum á Breiðavík en ekki á Rauðasandi og Bjargtöngum Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Umferðarstýring gangi vel og ökumenn hlýði einstefnu Tólf hundruð ferðamenn fluttir í rútum á Snæfellsnes Vegfarendur gefi sér góðan tíma til ferðalaga í dag Tveir handteknir í tengslum við heimilisofbeldi Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Maðurinn fundinn Fjórfalt fleiri lögreglumenn vakta Vestfirði Skemmdir á nýrri vatnsleiðslu til Eyja Leita svara við aldargamalli ráðgátu sólarinnar Gætu þurft að skila skyndibitaumbúðum Gripinn með stolið kreditkort og handtekinn Hafa borið kennsl á hinn látna Einn um borð þegar eldur kviknaði í fiskibát Kveikt á götulýsingu í sólmyrkva á stofnbrautum Líkfundur við Austurbæjarskóla Hólmbert bjargaði manni úr bíl sem stóð í ljósum logum í Kóreu Umbúðirnar gallaðar og hakkið fer aftur í bakka Gera ráð fyrir óvenjulangri aðalmeðferð í Reykholtsmálinu Tók konu kyrkingartaki nóttina eftir dóm og verður lengur í haldi Segir efnahagsmálin og verðbólguna að þróast í rétta átt Kristrún vísar ásökunum um sinnuleysi á bug Ekki lengur vafi á því hver hinn látni er Sjá meira