SÁÁ fær fimm krónur af hverjum lítra Stefán Árni Pálsson skrifar 6. maí 2015 14:20 Hugi Hreiðarsson, markaðsstjóri Atlantsolíu. vísir/anton
Í tilefni af álfasölu SÁÁ ætlar Atlantsolía að láta fimm krónur af verði hvers eldsneytislítra sem keyptur er með á afgreiðslustöðum félagsins á morgun, fimmtudag, renna til SÁÁ. Þetta kemur fram í tilkynningu frá SÁA. Í gegnum atlantsolia.is og saa.is geta velunnarar SÁÁ fengið sérstaka dælulykla frá Atlantsolíu sem tryggja þeim afsláttarverð á eldsneyti alla daga. Sá stuðningur tryggði samtökunum um 1,2 milljónir króna í tekjur á síðasta ári. Þessi sérstaki álfasöluafsláttur verður aðeins í gildi á morgun en þann dag verða sölumenn Álfsins staddir á fimm af dælustöðvum Atlantsolíu svo fólk geti keypt álfinn á meðan það fyllir á tankinn. Árleg álfasala SÁÁ hófst í morgun og stendur fram á sunnudag. Álfasalan er stærsta fjáröflunarverkefni SÁÁ ár hvert og eitt umfangsmesta fjáröflunarverkefni á vegum almannasamtaka sem fram fer á hverju ári hér á landi. Um eitt þúsund manns um land allt vinna við álfasöluna næstu daga. Um 20% af kostnaði við alla áfengismeðferð á vegum samtakanna greidd með söfnunarfé. Frá 1990 hefur Álfurinn skilað samtökunum um 550 milljónum króna í hreinar tekjur. „Við þökkum Atlantsolíu fyrir að styðja sérstaklega við SÁÁ í tilefni af álfasölunni. Atlantsolía er eitt þeirra fyrirtækja sem samtökin eiga ánægjulegt samstarf við,“ segir Arnþór Jónsson, formaður SÁÁ. Hann segir að ef SÁÁ nyti ekki beint fjárhagslegs stuðnings frá almenningi og fyrirtækjum eins og Atlantsolíu þyrfti að loka sjúkrahúsinu Vogi 1. október ár hvert eða fækka um fjórðung þeim sjúklingum sem þar komast inn. „Við erum þakklát fyrir stuðninginn í gegnum árin. Þörfin er því miður ekki minni nú en áður og við vitum að þjóðin vill styðja við bakið á SÁÁ og tryggja að samtökin veiti fíklum og fjölskyldum þeirra eins góða þjónustu og kostur er.“
Mest lesið Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Innlent Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Innlent Fleiri fréttir Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Sjá meira