Fimmtugir á árinu fá skimun í afmælisgjöf Jóhann Óli Eiðsson skrifar 17. janúar 2015 00:01 Þeir sem verða fimmtugir á árinu fá skimunarpróf frá Bláa naglanum að gjöf. vísir/vilhelm
Á árinu 2015 mun Blái naglinn gefa öllum þeim sem verða fimmtugir á árinu afmælisgjöf. Gjöfin er skimunarpróf fyrir blóði í hægðum. „Það eru 4.388 einstaklingar sem verða fimmtugir á árinu. Af þeim fá um 4.000 próf,“ segir Jóhannes Valgeir Reynisson, stofnandi Bláa naglans. Þeir sem merktir eru með bannmerki í símaskránni fá ekki slíka gjöf. Prófin verða send út mánaðarlega til allra þeirra sem eiga afmæli í þeim mánuði. Fyrsti skammturinn, alls 287 próf, fór út í gær og 301 verður sent 1. febrúar.Jóhannes Valgeir ReynissonÞann 1. febrúar verður heimasíðan krabbameinsleit.is sett í loftið þar sem fólk getur skráð hvort blóð finnist í hægðum þess eður ei. „Niðurstöðurnar munu koma til okkar dulkóðaðar og órekjanlegar. Það er mikilvægt fyrir okkur að sjá hjá hve mörgum finnst blóð en þetta getur verið enn mikilvægara fyrir þá sem finna blóð í hægðunum og geta leitað sér aðstoðar í kjölfarið,“ segir Jóhannes. Alls greinast um 130 einstaklingar með ristilskrabbamein árlega og um fimmtíu látast. Jóhannes segir að með virkri fræðslu og forvarnarstarfi sé mögulegt að koma í veg fyrir um áttatíu prósent dauðsfallanna sé meinið greint fyrr en nú. „Kostnaðurinn af þessu skiptir ekki máli sé litið til hagsmunanna sem eru í húfi. Ávinningurinn er margfalt meiri en kostnaðurinn,“ segir Jóhannes.
Mest lesið Þúsund íslensk ungmenni leggja undir sig Krít Innlent Viðreisn líst hvorki á Framsókn né Miðflokk Innlent Samfylking útilokar Framsókn: „Búið að brjóta það traust áður en það byrjaði“ Innlent Guðjón Reykdal Óskarsson er látinn Innlent Hræðileg umgengni á golfvellinum í Hveragerði Innlent Ekkjan fór með fullnaðarsigur af hólmi í héraði Innlent Tíðindi í vændum: Boðar borgarstjórnarflokkinn á fund Innlent Ísland sé orðið dýrasta land í heimi Innlent Fluttur til Noregs með brunasár á um helmingi líkamans Innlent Sjálfstæðismenn í Hafnarfirði slíta meirihlutaviðræðum Innlent Fleiri fréttir Nýtti sér dauðvona mann i auglýsingaskyni Dramatík í Hafnarfirði Mikil leynd ríkir yfir smáatriðunum Vilhjálmur verður bæjarstjóri „Ég er ekki nógu góður í slíkri skák“ Skraf Sjálfstæðismanna í húsi Snarfara Gabríel Douane fær tólf mánuði til: „Fjarstæðukennt“ að hann hafi óvart tekið símann Ráða verkefnisstjóra í málum Grindavíkur Hyggjast halda samstarfinu áfram Viðreisn líst hvorki á Framsókn né Miðflokk Kristinn verður áfram bæjarstjóri Valdimar hafnar alfarið fullyrðingum um trúnaðarbrest Ekkjan fór með fullnaðarsigur af hólmi í héraði Icelandair og flugmenn funda aftur í fyrramálið Berglind verður bæjarstjóri og Óðinn formaður bæjarráðs Inga skipar nýjan skólameistara Borgarholtsskóla Hræðileg umgengni á golfvellinum í Hveragerði Samfylking útilokar Framsókn: „Búið að brjóta það traust áður en það byrjaði“ Tíðindi í vændum: Boðar borgarstjórnarflokkinn á fund Sjálfstæðismenn í Hafnarfirði slíta meirihlutaviðræðum Ísland dýrast í heimi og nýr meirihluti kynntur fyrir norðan Ísland sé orðið dýrasta land í heimi „Getum við þá hætt að tala um rafvarnarvopn?“ Árni skólameistari heldur embættinu Skipuð rektor MH fyrst kvenna Lokatölur í Mýrdalshreppi: Nýr listi með flest atkvæði Tvær sóttu um stöðu skólameistara Fjölbrautaskóla Suðurnesja Halla og Björn á ferð um Suðurland í dag Eldur kom upp í vélarúmi báts Guðjón Reykdal Óskarsson er látinn Sjá meira