Lokuð inni í eigin íbúð með fjölfatlaða dóttur Stefán Árni Pálsson skrifar 3. febrúar 2015 10:45 Hrafnhildur Sigurvinsdóttir brotnaði illa á heimili sínu á föstudaginn. vísir/vilhelm „
Það þarf algjörlega að fylgjast með henni allan sólahringinn,“segir Arndís Einarsdóttir, sem er móðir fjölfatlaðrar konu, sem fótbrotnaði á dögunum. Arndís var gestur í þættinum Í bítið á Bylgjunni í morgun. Dóttir hennar heitir Hrafnhildur Sigurvinsdóttir og er tuttugu og tveggja ára. Hún er hreyfihömluð, andlega fötluð og greind með ofvirkni og athyglisbrest. „Hún er með lélegt jafnvægi, viðkvæm bein og á til að detta auðveldlega. Þetta á því ekki vel saman.“ Hrafnhildur datt illa á heimili sínu síðastliðin föstudag og fótbrotnaði illa.Fór strax í aðgerð „Hún fór í aðgerð daginn eftir og má ekki stíga í fótinn í allavega sex vikur. Ef við göngum út frá því að þetta grói eins og hjá öðrum, þá ætti hún að vera orðin góð í vor eða sumar,“ segir Arndís en dóttir hennar verður bundin við hjólastól næstu vikur. Hún segir að dóttir sín sé í skammtímavistun aðra hverja viku á Holtavegi. „Það er bara svo mikil mannekla þarna og ég hringdi í dagvistunina í gær og þeir treysta sér ekki til að taka hana. Hún þarf rosalega mikla aðstoð núna,“ segir Arndís en þær mæðgur búa saman í kjallaraíbúð. „Ég kemst ekki út með hana, alveg sama hvað ég reyni. Ég kemst ekki með hana upp tröppurnar í hjólastólnum og ekki niður með hana heldur.“ Hrafnhildur hefur verið með umsókn um búsetu hjá Reykjavíkurborg í ferli í mörg árEkkert búsetuúrræði „Nýjustu fréttir, síðan í gær, eru þær að það er ekkert að gerast í þeim málum. Hún var efst á lista í sinni þjónustumiðstöð sumarið 2013 og kom alveg til greina, en þá fékk hún ekki búsetu og síðan þá hefur ekkert gerst.“ Hvorki Arndís né dóttir hennar komast því út úr húsi næstu vikurnar. „Það vantar alveg eitthvað kerfi sem fer í gang þegar svona slys á sér stað og tekur utan um manneskjuna. Til dæmis bara einhverskonar heimilishjálp.“ Arndís gafst upp á því fyrir fjórum árum að vera útivinnandi og hefur síðan þá þurft að vera heima.
Mest lesið Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Uppsagnir hjá Klettabæ Innlent Fleiri fréttir Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au-pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Sjá meira