Stjörnukonur búnar að vinna tvo titla í ár | Meistarar meistaranna í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. maí 2015 21:07 Harpa Þorsteinsdóttir og Stjörnustelpurnar unnu enn einn titilinn í kvöld. Vísir/Daníel
Íslands- og bikarmeistarar Stjörnunnar tryggðu sér í kvöld sigur í Meistarakeppni KSÍ eftir 4-1 sigur á Breiðabliki á heimavelli sínum, Samsung-vellinum í Garðabæ. Markadrottningin Harpa Þorsteinsdóttir skoraði tvö mörk og lagði upp eitt fyrir Garðabæjarliðið í leiknum en staðan var 1-1 í hálfleik. Leikurinn var frekar jafn en Stjörnukonur refsuðu grimmt fyrir mistök Blikanna. Þetta er í annað skiptið sem Stjörnukonur eru meistarar meistaranna en liðið vann þennan titil einnig 2012. Bæði karla og kvennalið félagsins unnu Meistarakeppnina í ár því strákarnir unnu 1-0 sigur á KR á dögunum. Stjörnuliðið vann tvöfalt í fyrra en aðeins annan af titlunum sem voru í boði fyrir mótið. Þær hafa nú unnið tvo úrslitaleiki á móti Breiðabliki á átta dögum og hafa því byrjað tímabilið betur en í fyrra þegar þær töpuðu á móti Blikum í Meistarakeppninni. Rúna Sif Stefánsdóttir skoraði fyrsta mark Stjörnunnar á 33. mínútu með skalla eftir fyrirgjöf frá Björk Gunnarsdóttur. Blikar jöfnuðu metin á 44. mínútu þegar Telma Hjaltalín Þrastardóttir skoraði eftir laglegan einleik. Harpa nýtti sér varnarmistök Blika í upphafi seinni hálfleiks og kom Stjörnunni í 2-1 og önnur mistök varnarmanna færðu Hörðu síðan annað mark á silfurfari á 69. mínútu. Harpa lagði síðan upp fjórða og síðasta mark Stjörnuliðsins fyrir varamanninn Guðrún Karítas Sigurðardóttir en það mark kom í uppbótartíma leiksins.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Er nýi Haaland íslenskur? Fótbolti Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Fótbolti Arnór í leyfi frá störfum Fótbolti The Times: Norska sambandið mun kvarta undan Trump Fótbolti „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ Íslenski boltinn Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Sport Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Messi er mesti yfirburðamaður eins liðs í HM-sögunni Fótbolti Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar Fótbolti Kærustuparið gerði það sem engum hafði tekist í sögu heimsleikanna Sport Fleiri fréttir Spilaði á móti Þór um síðustu helgi og var síðan lánaður til Þórs Spilar gegnum meiðsli: „Verður örugglega svolítið vont“ Gegndrepa Jón Þór bíður sólarinnar „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ „Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ Eyjakonur þétta vörnina Vandræðalega slakar Valskonur: „Til skammar“ Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Uppgjörið: Valur – Breiðablik 1-7 | Hrafnhildur Ása og Agla María tættu vörn Vals í sig Uppgjörið: Fylkir – Afturelding 3-4 (1-1) | Afturelding í úrslit bikarkeppninnar í fyrsta sinn Uppgjörið: FH – Stjarnan 7-3 | FH heldur toppsætinu Sögulegur leikur fyrir Mosfellinga Pressuóðir Ísraelar í Víkinni Sjáðu draumainnkomu Söntu í íslenska boltann „Þetta lítur bara illa út“ Bossabissnessinn blómstrar samhliða boltanum Bjarni Guðjóns viðurkenndi að dæma átti víti á son hans Sjáðu langskotaveislu Keflvíkinga í stórsigri á Skagamönnum Uppgjörið: FH – Breiðablik 0-0 | Markalaust þrátt fyrir fjölda færa og umdeilanleg atvik Uppgjör: Keflavík – ÍA | Slátrun á Suðurnesjunum Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Þróttur 4-2 | Ótrúleg endurkoma og nýliðaþrenna Sjáðu Fram og Þór/KA hrista vel upp í fallbaráttunni í Bestu kvenna Beið spenntur eftir því að Amin færi út Sjáðu Stjörnusnakksmáltíð KR-inga og markajafntefli í Eyjum „Vorum bara litlar í okkur og vorum bara hérna að grenja“ „Frábært að vera komnar á sigurbraut aftur“ Sjáðu mörkin þegar Þór vann meistarana og Fram sótti sigur á Hlíðarenda „Fannst mikilvægt að byrja þetta með krafti“ „Satt best að segja er mér drullusama“ Uppgjörið: Þór/KA - ÍBV 2-1 | Þriðji sigurinn í síðustu fjórum leikjum Sjá meira