Ekki fréttafölsun segir kynlífsblaðamaðurinn Jakob Bjarnar skrifar 17. nóvember 2015 13:04 Dularfulli maðurinn sem keypti vændi af Deltu White er sannarlega til, svo raunverulegur að Raghneiður hafði séð hann á Tinder og lækaði hann þar.
Viðtal á Pressunni undir fyrirsögninni „Stefán svaf hjá uppáhalds klámmyndaleikkonunni sinni“ vakti mikla athygli í gær en þar segir af ferð íslensks karlmanns til London sem kaupir vændisþjónustu af eftirlætis klámmyndaleikkonu sinni. Maðurinn segir af reynslu sinni í viðtali við Ragnheiði Eiríksdóttur kynlífsfræðing og blaðamann. Ragnheiður hefur mátt sitja undir ásökunum um að hafa skáldað viðtalið frá upphafi til enda. Þannig segir til dæmis Haukur Viðar Alfreðsson textagerðarmaður á Brandenburg á sinni Facebooksíðu: „Ef þetta spjall fór raunverulega fram og eitthvað af þessu gerðist í alvörunni skal ég gefa ykkur öllum tvöhundruð milljarða.“ Hann er fráleitt einn um að efast um að viðtalið sé raunverulegt, en það má heita nokkuð alvarleg ásökun þegar blaðamenn eru annars vegar að þeir gerist sekir um fréttafölsun. Sjálf var Ragnheiður í viðtali á Harmageddon í morgun og hún staðhæfir að maðurinn sé raunverulegur. „Honum fannst þetta sjokkerandi, hversu víða þetta fór,“ segir Ragnheiður sem upplýsir að lestur viðtals síns hafi slegið öll met og og sé nú komið í hátt í 60 þúsund heimsóknir.Ragnheiður er spurð nánar út í manninn og hún segir svo frá að maður sem hún starfar fyrir hafi greint henni frá tilvist og ævintýrum þess manns sem hún kýs að kalla Stefán, einhverra hluta vegna. „Hann sagði mér frá þessum manni sem er vinur hans og spurði hvort hann væri tilbúinn að hitta mig og segja söguna. En hann er vandlega dulbúinn eins og ég dulbý mína viðmælendur sem óska nafnleyndar.“ Ragnheiður segir aðspurð að útlit mannsins hafi ekki komið sér á óvart, einfaldlega vegna þess að hún hafði séð hann áður. „Ég hafði séð hann á Tinder og lækaði hann þar.“ Umsjónarmenn Harmageddon lék forvitni á að vita hvort „Stefán“ væri úr Garðabænum en ekki var það svo að Ragnheiði væri kunnugt um það. „Ég hef smekk fyrir mönnum úr Garðabænum.“ Umrætt viðtal hefur vakið upp nokkra reiði meðal þeirra sem eru miklir andstæðingar vændisstarfsemi en Ragnheiður hefur verið sökuð um að dásama það með framsetningu og viðtalinu. „Fámennur og hávær hópur sem fór mikinn á netinu í gær. Ég hef séð eitthvað af þessu. Enginn haft samband við mig beint, veit ekki af hverju. Nokkur komment á þráðum. En, ótrúlega lítið miðað við hversu gríðarlega mikill lestur er á þessari grein,“ segir Ragnheiður: „En, auðvitað, þetta vekur upp miklar tilfinningar hjá fólki og mér finnst alltaf jákvætt þegar ég get ýtt af stað einhverri umræðu. Það er hiti í fólki varðandi þessi mál og auðvitað öllum frjálst að skrifa greinar um hitt og þetta.“Ef þetta spjall fór raunverulega fram og eitthvað af þessu gerðist í alvörunni skal ég gefa ykkur öllum tvöhundruð milljarða.Posted by Haukur Viðar Alfreðsson on 16. nóvember 2015
Harmageddon Mest lesið Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Lífið „Ég sef í gallabuxum“ Tíska og hönnun Þegar tónlistin heltók lögmanninn Lífið Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir Lífið Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Lífið Metsöluhöfundur birtist óvænt á Ísafirði og áritaði bækur Menning Langdregnir brandarar stoppa ekki stuðið Gagnrýni Anthony Head er látinn Lífið „Aldrei of seint að gera hlutina“ Lífið Sumarbókaveisla á Bylgjunni: Kemur alltaf gott samtal út frá bókum Lífið samstarf Fleiri fréttir Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ „Núna stjórna stelpur landinu og strákar klippa hár“ Uppgötvuð á götum Barcelona Hvað veistu um... Snæfellsnes? Leikritið eigi sérstaklega erindi nú Manst þú eftir þessum sígildu sumarleikjum? Matthildur Margrét og Sigurður Hrannar eiga von á barni „Við notum þetta orð yfir sundið, kaffið, og ástina okkar“ Getur hermt fullkomlega eftir tugum fugla Myndaveisla: Tárin streymdu þegar Áslaug kvaddi Valin versti ljósmyndari heims Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björnsdóttur Vegglistaverkið í Vesturbæ stækkað Stjörnufans í eins árs afmæli „Rosaleg skömm fyrir mig á sínum tíma“ Ágústa Eva setur 170 milljónir á einbýlishúsið í Hveragerði Mætti á 95 ára Chevrolet og tók sæti á þingi Léttist um átján kíló á ógnarhraða með hjálp gervigreindar Bar upp bónorðið á Bæjarins beztu Krefst þess að Applegate haldi sig fjarri henni Allir héldu Michelin-stjörnunni Sjá meira