Mourinho ósáttur með eiginkonu Benitez | „Ætti að einbeita sér að megrun eiginmanns síns“ Kristinn Páll Teitsson skrifar 29. júlí 2015 10:30 Benitez og Mourinho áttu margar rimmur á hliðarlínunni þegar Benitez var knattspyrnustjóri Liverpool Vísir/Getty
Jose Mourinho, knattspyrnustjóra Chelsea, var ekki skemmt er blaðamenn spurðu hann út í viðtal sem tekið var við eiginkonu Rafa Benitez, knattspyrnustjóra Real Madrid. Sagði hann undra sig á því að hún væri að eyða tíma sínum í hann, þess í stað gæti hún eytt tímanum í að sjá um megrun eiginmanns síns. Montse Seara, eiginkona Benitez, sagði í viðtali í spænska miðla í gær að eiginmaður sinn væri orðinn vanur að þrífa upp skítinn eftir Mourinho en þetta er í þriðja sinn sem Benitez tekur við liði sem Mourinho hefur stýrt áður fyrr. Mourinho minnti hana hinsvegar á það að hann hefði aðeins tekið einu sinni við liði beint úr höndum hans er Benitez tók við Inter 2010 en hann var rekinn sex mánuðum seinna. Gekk honum betur hjá Chelsea þar sem hann stýrði liðinu til sigurs í Evrópudeildinni en hann féll ekki í kramið hjá stuðningsmönnum liðsins og hætti hann því eftir eina tímabil sitt hjá félaginu. Eftir tvö tímabil á Ítalíu sem knattspyrnustjóri Napoli tók Benitez við Real Madrid í sumar af Carlo Ancelotti en um er að ræða fyrsta starf Benitez á Spáni frá því að hann gerði Valencia tvisvar að spænskum meisturum á þremur tímabilum. „Hún virðist vera eitthvað áttavillt. Í eina skiptið sem hann tók við liðinu mínu var hjá Inter þar sem hann eyðilagði besta lið Evrópu á sex mánuðum. Að hún skuli leyfa sér að tala um mig í þessum tón er ótrúlegt. Ef hún eyðir meiri tíma í að fylgjast með megrun eiginmanns síns hefur hún minni tíma til þess að tala um mig.“
Enski boltinn Mest lesið „Hvers konar spurning er þetta?“ Sport KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Íslenski boltinn Klopp umbreytir starfinu Fótbolti Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Fótbolti Lando Norris stofnar sitt eigið lið Formúla 1 Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Fótbolti Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Íslenski boltinn Löng bönn, risa sektir og bannaðir frá nýliðavalinu Körfubolti Cecilía Rán tryggði Inter í Meistaradeildina Fótbolti Heims- og Ólympíumeistari lenti í árekstri og getur ekki æft Sport Fleiri fréttir Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Sjá meira