Dularfulla kartöflumjölsmálið leyst: Pokarnir leikmunir í Morfís Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 3. maí 2015 22:18 Pokarnir fóru aldeilis í ferðalag eftir Morfís viðureign MS og Verzló. Mynd/Haukur/Klara
Dularfullu kartöflumjöls- og flórsykurpokarnir sem fundust á Hendrix voru nýttir sem leikmunir í úrslitaviðureign Morfís föstudaginn 24. apríl. „Ég sá þetta og þetta er hundrað prósent það sem við gerðum,“ segir Klara Óðinsdóttir, þjálfari ræðuliðs Menntaskólans við Sund sem keppti í úrslitum á móti Verzlunarskóla Íslands hlæjandi. Umræðuefnið í keppninni var lögleiðing fíkniefna. Pokarnir fundust á Hendrix undir bekk og var lögregla kölluð til að skera úr um efnin. „Við vorum með og vorum með grínræðu um Verzlinga, líkt og þeir væru að beita hræðsluáróðri og teldu að allt yrði vaðandi í fíkniefnum ef þau yrðu leyfð og hentum pokunum yfir salinn, 200 stykkjum.“ Klara þekkir pokana vel en hún fyllti þá ásamt Kristínu Lilju Sigurðardóttur, liðsstjóra ræðuliðs MS, í aðdraganda keppninnar. Grínatriðið var í seinni hluta keppninnar en það var meðmælandi MS-inga, Sólrún Freyja Sen sem dreifði pokunum um salinn. Klara segir greinilegt að síðan hafi einhverjir Verzlingar tekið pokana með sér í gríni en hún vissi til þess að einhverjir þeirra ætluðu á Hendrix að keppninni lokinni. „Okkur finnst leiðinlegt að hafa valdið heilabrotum. Ég var búin að láta forvarnarfulltrúann í MS vita að við ætluðum að vera með svona grín og allt,“ útskýrir hún en liðið bjóst aldrei við að pokarnir myndu valda vandræðum og það var ekki tilgangur þeirra. „Ég hefði ekki viljað bera ábyrgð á því að einhver snortaði þetta og fengi sykursjokk,“ segir Klara og hlær.
Tengdar fréttir Dularfullur fundur á Hendrix: Fíkniefnin reyndust kartöflumjöl „Ég veit ekkert hver tilgangurinn hefur verið,“ segir Haukur Vagnsson, eigandi Hendrix. 3. maí 2015 19:45 Mest lesið Vaktin: Austanbylur annan í páskum Veður „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Innlent Rúta valt á Kjalarnesi Innlent Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Innlent Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Innlent Fjær að heiman en nokkur maður frá upphafi Erlent Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Innlent Íranska þjóðin fagni sprengjuregni Erlent Lilja mætt aftur á Alþingi Innlent Fastir bílar, fall af hestbaki og þakkjölur við það að losna Innlent Fleiri fréttir Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Rotaðist eftir að hafa fokið á höfuðið Flugmönnum leyfist að gera mistök í flughermi „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Rúta valt á Kjalarnesi Fastir bílar, fall af hestbaki og þakkjölur við það að losna Tuttugu þúsund á hvern illa búinn hjólbarða Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Lilja mætt aftur á Alþingi Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Lýstu eftir manni á níræðisaldri „Skynsamlegt að spyrja þjóðina“ Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Fólk stillt að mestu á Akureyri „Stórslysalaust“ á Ísafirði í nótt Hvernig greiðir Ragnar Þór atkvæði í ágúst? Gefur skít í helvítishótanir Trumps Viðreins býður fram sinn fyrsta lista á Akranesi Unnið að tillögum um lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Hleypt inn í hollum í Vesturbæjarlaug Eldri borgarar einmana en eigi erfitt með að rífa sig upp á ný Segir stjórnvöld vinna gegn ferðaþjónustunni „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni Óvissa í ferðaþjónustu og stuð á Aldrei fór ég suður Þrír vistaðir í fangaklefa og einn fluttur á bráðamóttöku Sjá meira
Dularfullur fundur á Hendrix: Fíkniefnin reyndust kartöflumjöl „Ég veit ekkert hver tilgangurinn hefur verið,“ segir Haukur Vagnsson, eigandi Hendrix. 3. maí 2015 19:45