Bjarga kveðjum bandarískra flugmanna: „Þetta hefur mikla þýðingu fyrir þá“ Birgir Olgeirsson skrifar 28. apríl 2015 12:44 „
Þetta hefur mikla þýðingu fyrir þá,“ segir Sigurður Björgvin Magnússon sem hefur undanfarið bjargað minjum úr gömlu flugskýli á fyrrverandi varnarsvæði Atlantshafsbandalagsins við Keflavíkurflugvöll á Miðnesheiði. Sigurður Björgvin er til að mynda núna að pakka inn flísum sem liðsmenn þyrlubjörgunarsveitar Bandaríkjahers rituðu skilaboð á meðan dvöl þeirra stóð á Íslandi. Sigurður birti meðal annars myndir af þessum flísum í Facebook-hópnum NASKEF en meðlimir hans telja um þrjú þúsund manns sem störfuðu á einhverjum tímapunkti á varnarsvæðinu á Miðnesheiði. Sigurður hefur fengið fjölda skilaboða frá ekkjum þeirra sem skildu eftir sig skilaboð á flísunum í flugskýlinu og þá hefur þyrlubjörgunarsveitin sem var hér á landi á vegum Bandaríkjahers, en er nú með aðsetur í Lakenheath á Bretlandi, einnig óskað eftir góðum myndum af vegg í flugskýlinu sem sýnir allar aðgerðir sem sveitin tók þátt í á Íslandi á árunum 1971 til 2005.Til stendur að endurgera þennan vegg í Lakenheath en þangað sendir Sigurður flísarnar og verður þeim komið þaðan til ættingja þeirra sem skildu eftir sig skilaboð í flugskýlinu. „„Þegar ég kom hingað átti ég tvær dætur. Nú á ég þrjár. Það gerist þegar það er sex stiga frost,“ skrifaði liðþjálfinn Kirsch á eina flísina en hann var á varnarsvæðinu frá febrúar 2002 til júlí 2004. „1.115 dagar og aðeins einu sinni tekinn fyrir ölvunarakstur,“ skrifaði liðþjálfinn JimmyFord sem var á varnarsvæðinu frá apríl 2001 til apríl 2004. Þá var einn sem lauk veru sinni í Bandaríkjaher á Íslandi. „Takk fyrir frábæran endi á flugferli mínum,“ skrifar JimHamblin sem var einnig þekktur undir nafninu „Jöklamaðurinn“.Sigurður Björgvin Magnússon og Björgvin Garðarsson hafa unnið við að ná flísunum niður og til stendur að senda þær út. Vísir/VilhelmVeggurinn umræddi sem endurgera á í Lakenheath í Bretlandi. Vísir/Vilhelm
Mest lesið Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Innlent Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Innlent Fleiri fréttir Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Sjá meira