Flestir telja Katrínu heiðarlega en Bjarna og Sigmund úr tengslum við almenning Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 28. apríl 2015 15:40 Bjarni, Katrín og Sigmundur starfa fyrir ólíka flokka. Vísir/Samsett mynd
Flestir telja Katrínu Jakobsdóttur, formann Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs, gædda jákvæðum persónueiginleikum af stjórnmálaleiðtogum landsins. Þetta er niðurstaða nýrrar könnunar MMR þar sem álit almennings til persónueiginleika nokkurra stjórnmálaleiðtoga var könnuð. Niðurstöðurnar í heild sinni má lesa hér. Kostirnir sem spurt var um voru: heiðarleiki, persónutöfrar, að standa við eigin sannfæringu, styrkur, tengsl við almenning, leiðtogahæfni, ákveðni, hæfni til að vinna vel undir álagi, skilar árangri, virðing fyrir skoðunum annarra og hagsmunagæsla fyrir almenning. Katrín var hæst í flestum flokkanna. Þannig töldu 48 prósent þeirra sem spurðir voru Katrínu standa við eigin sannfæringu, 47 prósent töldu hana heiðarlega, 36 prósent töldu hana gædda persónutöfrum, 42 prósent töldu hana ákveðna og 31 prósent taldi hana virða skoðanir annarra. Ólafur Ragnar Grímsson töldu svarendur þann sem helst væri fæddur leiðtogi eða 30 prósent þeirra sem spurð voru. 34 prósent töldu hann standa við eigin sannfæringu, 33 prósent töldu hann sterkan en aðeins 20 prósent svarenda töldu hann heiðarlegan. Forystumenn í sitjandi ríkisstjórn komu heldur illa út úr könnuninni. Aðeins 9 prósent töldu Sigmund Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, heiðarlegan, 5 prósent töldu hann gæddan persónutöfrum, 11 prósent töldu hann sterkan, 5 prósent töldu hann fæddan leiðtoga, 5 prósent töldu hann í tengslum við almenning og 8 prósent töldu hann starfa vel undir álagi. Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, er í jafnlélegum tengslum við almenning og Sigmundur Davíð samkvæmt niðurstöðum könnunnarinnar en hann var þó af fleirum talinn gæddur persónutöfrum en þeirri spurningu svöruðu játandi 20 prósent svarenda. Bjarni var af 15 prósent svarenda talinn fæddur leiðtogi. Athygli vekur að helmingur þeirra sem svöruðu könnuninni segja Sigmund Davíð gæddan engan af fyrrtöldum mannkostum, 40 prósent telja Bjarna Benediktsson gjörsneyddan þessum kostum en aðeins 15 prósent svarenda töldu Katrínu Jakobsdóttur vanta alla kostina sem könnunin bauð upp á. Spurt var um helstu stjórnmálaleiðtoga landsins.Skjáskot af síðu MMRSpurt var um helstu stjórnmálaleiðtoga landsins.Skjáskot af síðu MMRSpurt var um helstu stjórnmálaleiðtoga landsins.Skjáskot af síðu MMR
Mest lesið Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Innlent Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Innlent Fleiri fréttir Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Sjá meira