11 ára íslensk stúlka vegabréfslaus í tæpt ár ingvar haraldsson skrifar 29. apríl 2015 13:45 Harriet og Duncan Cardew hafa heitið stúlka og drengur Cardew í Þjóðskrá frá fæðingu. vísir/daníel „
Þetta er búið að taka ótrúlega langan tíma,“ segir Kristín Cardew, móðir Harrietar Cardew, sem síðasta sumar var synjað um íslenskt vegabréf af Þjóðskrá Íslands því nafnið Harriet var ekki samþykkt af mannanafnanefnd. Í kjölfarið kærðu foreldrarnir úrskurðinn til innanríkisráðuneytisins. Ekki er búið að afgreiða kæruna hjá innanríkisráðuneyti tíu mánuðum eftir að hún barst. Sjá einnig: 10 ára stúlku neitað um vegabréf af Þjóðskrá„Það er ótrúlegt að hægt sé að synja íslenskum ríkisborgurum um vegabréf,“ segir Kristín. Vegabréf Duncan, bróður Harrietar, er nú einnig runnið út og komast systkinin því ekki úr landi með íslensk vegabréf. Systkinin hafa borið nöfnin stúlka og drengur í Þjóðskrá frá fæðingu. Fjölskyldunni var tilkynnt við synjunina að verið væri að hreinsa út alla þá sem hétu stúlka og drengur hjá Þjóðskrá. Kristín sagði ákvörðunin fáránlega enda mættu börnin bera erlend nöfn ef báðir foreldrarnir væru erlendir. „Þau mættu einnig bera erlend nöfn ef þau hefðu íslenskt fornafn eða millinafn,“ sagði Kristín síðasta sumar. „Sem betur fer ætluðum við ekki út í sumar,“ segir Kristín nú. Fjölskyldan getur þó sótt um breskt vegabréf fyrir börnin þar sem þau eru með tvöfalt ríkisfang.Tvívegis verið tilkynnt um að afgreiðsla sé á næsta leitiÍ nóvember síðastliðnum barst Ragnari Aðalsteinssyni, lögmanni fjölskyldunnar, bréf frá innanríkisráðuneytinu þar sem beðist var velvirðingar á töfunum og að afgreiðslu á málinu væri að vænta innan tveggja mánaða, þ.e. fyrir lok janúar.Sjá einnig: Segir Þjóðskrá hafa brotið stjórnarskráEngin frekari svör höfðu borist frá ráðuneytinu um miðjan mars og þegar fregna var leitað bárust þau svör að vegna mikilla anna hjá ráðuneytinu hefði ekki verið hægt að taka málið fyrir en niðurstöðu væri að vænta í lok maí. Þá verður næstum heilt ár liðið síðan Þjóðskrá neitaði Harriet um vegabréf.
Mest lesið Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Fleiri fréttir Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Sjá meira