Bjó við heimilisofbeldi sem barn: Lífið einkenndist af hræðslu og kvíða Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 20. febrúar 2015 16:49 "Ég er fórnarlamb heimilisofbeldis,“ skrifaði Ingibjörg á Facebook í gær en hún segir opinberun fyrsta skrefið í átt að bata. Hún vill opna umræðuna um heimilisofbeldi á Íslandi.
Ingibjörg Ýr Smáradóttir er tvítug kona sem bjó stóran hluta ævi sinnar við gróft heimilisofbeldi af hálfu stjúpföður síns. Hún segir líf sitt hafa einkennst af hræðslu og kvíða og man vart eftir því öðruvísi. Ingibjörg segir að þrátt fyrir að ofbeldið muni koma til með að hafa áhrif á hana alla hennar ævi, muni hún ekki láta stjórnast af því. Því hefur hún leitað sér aðstoðar og ætlar að breyta veikleikum sínum í styrkleika.Bernskunni rænt Ofbeldið byrjaði þegar Ingibjörg var tíu ára gömul og lauk þegar hún flutti út, sextán ára. Hún segir það fyrst um sinn hafa verið andlegt, en fljótt hafi stjúpfaðir hennar byrjað að leggja á hana hendur. Í þeirri andrá hafi æskuárunum verið af henni rænt. „Andlega ofbeldið var alltaf reglulegt, nánast daglega. Þá var ég algjörlega brotin niður og mér sagt hvað ég væri ljót, leiðinleg og erfið. Maður var brotinn niður á alla þá vegu sem hægt var að brjóta mann niður,“ segir Ingibjörg í samtali við Vísi. Ingibjörg segist fljótt hafa byrjað að trúa öllu því sem stjúpfaðir hennar sagði og enn þann dag í dag á hún erfitt með að verjast þeim hugsunum. Sjálfstraustið og sjálfsálitið sé í molum. „Ég hélt að ég væri einskis virði og þetta er fast í hausnum á mér. Þess vegna er ég að vinna svona í þessu svo ég geti öðlast sjálfstraust og orðið venjuleg.“Ingibjörg segir kærasta sinn, Gunnar Sigfússon, stoð sína og styttu. Án hans væri hún ekki á þeim góða stað í lífinu sem hún sé nú í dag.Skömmin mikil Líkamlega ofbeldið var harkalegt oft á tíðum að sögn Ingibjargar. Hún segir stjúpföður sinn reglulega hafa tekið bræðisköst á heimilinu, hann hafi barið í veggi, brotið húsgögn og að lokum lagt á hana hendur. „Hann tuskaði mig til og klemmdi hendina mína inni í ísskáp, dró mig á hárinu og henti mér í stiga svo eitthvað sé nefnt,“ segir hún. Þessu fylgdi mikil skömm og var það óskrifuð regla inni á heimilinu að segja ekki nokkrum manni frá því sem átti sér stað innan veggja heimilisins. Móðir hennar tók loks þá ákvörðun í fyrrasumar að fara frá manninum og að sögn Ingibjargar horfir allt á betri veg í dag.Mömmu skorti kjark „Mamma var sjálf svo mikið fórnarlamb andlegs ofbeldis og hún var svo vanmáttug gegn honum að hún gat ekki farið. Hún stóð ekki upp gegn honum. Hún óskar þess á hverjum degi að hafa haft styrkinn til að standa með okkur og þetta bara braut hana niður, eins og okkur öll,“ segir Ingibjörg. Hún segir fjölskylduna alla tíð hafa falið ofbeldið fyrir sinni nánustu fjölskyldu, en er ánægð með að hlutirnir séu loks komnir á yfirborðið. „Öll fjölskyldan er bara í sjokki því þau vissu ekki neitt, við földum þetta bara. En þau styðja mig heilshugar í öllu,“ segir hún og bætir við að stjúpfaðir sinn fyrrverandi hafi sett sig í samband við fjölskylduna. Hann sé nú að vinna í sínum málum og sjái eftir því sem hann gerði. Ingibjörg sagði sögu sína á Facebook í gær, og hefur, sem ber að skilja, vakið mikla athygli. Hún tekst á við þunglyndi, félagsfælni og fleiri raskanir sem raktar eru til fortíðar hennar. Það ætlar hún að takast á við, ásamt kærasta sínum, sem hún segir stoð sína og styttu. Hún vill þó að fólk viti að heimilisofbeldi fylgi engin skömm. Hún sjálf ætli ekki að skammast sín lengur. „Maður á þetta aldrei skilið,“ segir Ingibjörg að lokum. Færslu hennar má sjá í heild hér fyrir neðan.Innlegg frá Ingibjörg Ýr Smáradóttir.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Innlent Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ Innlent Fleiri fréttir Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Sjá meira