Konur bíða lengur á bráðamóttöku Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 21. febrúar 2015 19:00
Konur með hjarta- og æðasjúkdóma bíða lengur á bráðamóttöku en karlar eftir aðstoð og fá síður lyfjameðferð. Þetta segir hjartalæknir sem telur vitundarvakningar þörf hjá heilbrigðisstarfsfólki. Algengasta dánarorsök kvenna á Íslandi eru hjarta- og æðasjúkdómar en talið er að um 350 konur látist af þeirra völdum á ári hverju. Yngstu konurnar eru 35 ára. „ Því miður deyja árlega alltaf nokkrar ungar konur sem hafa hvorki sjálfar gert sér grein fyrir að einkennin sem þær væru með væru tengd hjarta- og æðasjúkdómi og það hefur jafnvel komið fyrir að heilbrigðisstarfsfólk hefur heldur ekki áttað sig á því, “ segir Þórdís Jóna Hrafnkelsdóttir hjartalæknir. Hún segir að einkenni hjarta- og æðasjúkdóma séu oft óljósari hjá konum en körlum. Það hafi í för með sér að greiningarferli og áhættumat tefst oft. „ Konur fá síður lyfjameðferð. Þær bíða lengur á bráðamóttöku eftir aðstoð þó þær leiti á bráðamóttöku með alveg klassísk einkenni. Þannig að við virðumst ekki vera alveg á sama verði gangvart þessum sjúkdómi. Þannig að vitundarvakningar er þörf bæði hjá konum og hjá heilbrigðisstarfsfólki, “ segir Þórdís. Þórdís er formaður stjórnar GoRed sem stendur nú í sjöunda skiptið fyrir átaki til að fræða konur um áhættuþætti hjarta- og æðasjúkdóma. GoRed býður á morgun upp á heilsufarsmælingar fyrir konur í húsnæði Hjartaheilla í Síðumúla 6 á milli 11-16 og hvetur Þórdís konur til að koma.
Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu Innlent Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Erlent Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Erlent CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Innlent Svavar Sigmundsson er látinn Innlent Fleiri fréttir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Æfir kennarar og varað við verðstýringu Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Margir sátu hjá þegar launin voru hækkuð Halla Bergþóra nýr ríkislögreglustjóri „Nú hef ég auðvitað ekkert á móti fólki frá Nígeríu“ Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Rannsóknin á lokametrunum Fjórir landsréttardómarar vilja taka skrefið í Hæstarétt Forsetar Íslands og Slóveníu ræða leiðtogahlutverk í breyttum heimi Segir forsætisráðuneytið misnotað í þágu sveitarstjórnarkosninga Sjálfsmark með „sjúklega samfylkingarlegu“ kjötvörubanni Framkoman laði ekki lækna að Landspítalanum Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Sjá meira