Myndband: Egilshöll rýmd eftir að brunakerfi fór í gang Jóhann Óli Eiðsson skrifar 22. febrúar 2015 17:36 Leikmönnum og áhorfendum lá ekki á út í kuldann. vísir/pjetur
Hafist var handa við að rýma Egilshöll eftir að brunakerfið þar fór í gang. Enginn reykur eða eldur var þó sjáanlegur og hvergi hafði kviknað í. Slökkviliðið hafði ekki verið kallað út og þegar Vísir heyrði í starfsmanni hússins fengust þær upplýsingar að líklega hafi börn eða unglingar verið að fikta í kringum brunaboða eða einhver bilun hefði orðið í brunakerfi hússins. „Þetta er allt hálf kómískt,“ segir Elvar Geir Magnússon, annar ritstjóra Fótbolta.net, en hann er staddur í höllinni að fylgjast með leik Leiknis og Gróttu. „Það fór eitthvað boð í gang skömmu fyrir leik og dómarinn mat það svo að hann myndi stöðva leikinn ef eitthvað meira færi í gang. Eftir að þrjár mínútur voru búnar glumdi í öllum hátölurum að rýma skildi húsið þannig að leikmenn söfnuðust saman við neyðarútgang en enginn fór út.“ Svipaða sögu má segja af miðaafgreiðslunni í kvikmyndahúsið en Pjetur Sigurðsson, ljósmyndari Vísis, var á staðnum og náði myndbandi af fólki að bíða í röð meðan boðið var leikið í öllum hátölurum hússins. „Eftir smá stund hætti hávaðinn og leikurinn hófst á ný en tveimur mínútum síðar fór allt aftur í gang,“ segir Elvar Geir. Að endingu kom í ljós að um einhverskonar bilun í kerfinu var að ræða.
Mest lesið Brotist inn í Barnaloppuna Innlent „Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ Innlent Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Innlent Fjöldi ökumanna á von á kæru Innlent Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Innlent Kristján Kristjánsson kveður Sprengisand Innlent Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Erlent Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Erlent „Þessa vanlíðan þekkir enginn nema að hafa upplifað hana“ Innlent Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Erlent Fleiri fréttir Skoða hvort gerviaðgangar og grunsamlegar síður séu erlend öfl í dulbúningi Páll Magnússon tekur við af Kristjáni Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Brotist inn í Barnaloppuna Kristján Kristjánsson kveður Sprengisand Íbúi í Kænugarði um stríðið og áhyggjur lögreglu af erlendum áhrifum á ESB-kosningu Fortíð og framtíð Íslands í Evrópu á Sprengisandi Mundaði stólinn og lamdi gesti „Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ Þrengja Reykjaveg og loka tveimur götum við Laugarnesskóla Fjöldi ökumanna á von á kæru Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Þyrlan sækir slasaðan mann á Hestfjall Miðflokksmenn helmingi líklegri til að segja já en Sjálfstæðismenn Ósátt með fyrirhugaða sameiningu lögregluembætta Grindvískir krakkar sneru aftur á völlinn Lögnin komin á land en verður látin kyrr liggja „Önnur ríki með sérþarfir hafa miklu meira vægi í þeirri umræðu“ Bananastappa og hlaupbangsar á matseðlinum í tilraun tvö Velti allt á því hverjir mæti á kjörstað Allt hnífjafnt í nýjum þjóðarpúlsi og reynt aftur við Lagarfljót Hringvegurinn lokaður í gegnum Borgarnes annað kvöld Löng röð í öryggisleitina þriðja daginn í röð „Þessa vanlíðan þekkir enginn nema að hafa upplifað hana“ Leituðu manns sem átti að vera vopnaður rafbyssu Gerir aðra atlögu að Lagarfljóti um helgina „Klukkan tifar“ Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif „Við hefðum viljað samráð frekar en samtal“ Bændur í baráttuhug á leið í herferð um landið Sjá meira